Samhjálp kvenna
Samhjálp kvenna, samtök til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein. Stofnár: 1979 (sem formlegt félag sjálfboðaliða 2001). Formlegir félagsmenn eru um 50, þar af 40 sjálfboðaliðar í heimsóknaþjónustu, en um 640 fá fundarboð. Formaður er Dóra S. Júlíussen Netfang: samhjalp@krabb.is Vefsíða: www.samhjalpkvenna.org | |
Skrifstofa í Skógarhlíð 8 í Reykjavík er opin á þriðjudögum kl. 14.30 til 16.30, símar 540 1911 og 898 1712. Opið hús og fræðslufundir eru í Skógarhlíð 8 í Reykjavík þriðja þriðjudag í hverjum mánuði á veturna, kl. 20. Samtökin hafa gefið út nokkur fræðslurit.
Stjórn kosin á aðalfundi 3. maí 2012:
Meðstjórnandi: Guðrún Sigurjónsdóttir, Grófarsmára 35, 201 Kópavogi
Meðstjórnandi: Hrefna Ingólfsdóttir
Meðstjórnandi: Jónína Jónsdóttir
Meðstjórnandi: Kristín Karlsdóttir
Meðstjórnandi: Ragnheiður Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Sigrún Hauksdóttir, Ölduslóð 48, 220 Hafnarfirði 555 3513 shauks@internet.is
Starfsemi 2011-2012
Sjálfboðaliðastarfið. Stjórnarkonur hafa skipst á að hafa stuðningssímann og sinna beiðnum um heimsóknarþjónustu. Auk þess hafa óskir um stuðning komið í gegnum netpóst.
Kastað til bata. Krabbameinsfélagið og Samhjálp kvenna unnu sameiginlega að verkefninu „Kastað til bata“. Í maímánuði bauðst 14 konum að fara í silungsveiði í Sogið undir stjórn reyndra veiðimanna sem leiðbeindu konunum. Einnig var með í för hjúkrunarfræðingur frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins og konur frá Samhjálp kvenna. Ferðin tókst afburða vel og verið er að skipuleggja nýja ferð í júní í sumar, í Sogið.
Málþing um brjóstakrabbamein. Í samvinnu við Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélag Reykjavíkur var haldið málþing um brjóstakrabbamein 18. október 2011 í Arion banka í Borgartúni. Þema málþingsins var: „Stuðningur skiptir máli.“ Fundarstjóri var Siv Friðleifsdóttir alþingismaður. Nanna Sigurðardóttir félagsráðgjafi ræddi um börnin og samræðurnar í fjölskyldunni þegar krabbamein greinist. Margrét Bárðardóttir sálfræðingur ræddi um veikindi og vellíðan – frá streitu til sáttar. Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur ræddi um það að takast á við lífið eftir krabbamein – fýsileiki ráðgjafar¬meðferðar. Við upphaf fundar lék Jóna Einarsdóttir á harmonikku og í lok fundar lék KK nokkur lög. Glerveggur í anddyri hússins var skreyttur á sérstaklega fallegan hátt með bleikum og hvítum rósum, þær bleiku sem tákn fyrir þær konur sem greinast með krabbamein og þær hvítu fyrir konur sem deyja úr sjúkdómnum. Þessi skreyting var unnin af Auði Vésteinsdóttur.
Alþjóðabrjóstaheilsudagurinn. Þann 15. október ár hvert er haldinn sérstakur dagur til þess að minna á brjóstaheilsu í öllum löndum, sem eiga aðila að Europa Donna. Samhjálp kvenna stóð fyrir kynningu í Kringlunni á þessum degi þar sem lögð var áhersla á að konur gættu að brjóstaheilsu sinni m.a. með því að mæta í Leitarstöðina þegar bréf berst um skoðun og einnig með því að fylgjast sjálfar með breytingum á brjóstum sínum og gæta að heilsu sinni. Slagorð dagsins „make healthy choices“ var þýtt á öll tungumál þeirra sem eru í Europa Donna og útleggst á íslensku „veldu hollari kostinn“. Kynningin vakti mikla athygli í Kringlunni og gafst tækifæri til að ræða þar við fólk og veita upplýsingar.
Fræðslufundir (opið hús). Jólafundur var 22. nóvember 2011. Séra Sigurður Árni Þórðarson flutti hugvekju. Haukur Ingvarsson las úr nýútkominni bók sinn „Nóvember 76“. Nemar úr söngskóla Sigurðar Demetz sungu íslensk og erlend lög. Þann 28. febrúar sögðu Ragnheiður Guðmundsdóttir og Laila Sæunn Pétursdóttir frá sjálfboðaliðanámskeiði á vegum Europa Donna í Mílanó, í nóvember 2011. Lovísa Einarsdóttir, íþrótta¬kennari sagði frá reynslu sinni af leikfimi í rúma tvo áratugi fyrir konur sem greinst hafa með brjósta¬krabbamein. Stoð sýndi hjálparbúnað, undirföt og sundboli fyrir konur sen greinst hafa með brjóstakrabbamein. Þann 27. mars kom Geir Gunnlaugsson landlæknir á fræðslufund og ræddi um brjósta¬púða, m.a. í tengslum við uppbyggingu brjósta í kjölfar brottnáms vegna brjóstakrabbameins. Fræðslufundir hafa verið mjög vel sóttir í vetur.
Rabbfundir. Samhjálp kvenna býður konum sem nýlega hafa greinst með brjóstakrabbamein til rabbfunda fyrsta þriðjudag hvers mánaðar frá 16:30 til 17:30.
Europa Donna. Tveir fulltrúar Samhjálpar kvenna sóttu fund Europa Donna í Mílanó í nóvember 2011.
Nuddstólar. Samhjálp kvenna hefur haldið utanum söfnun á nuddstólum og stólum með stillanlegum setum fyrir krabbameinsdeildir Landspítala í samvinnu við Eddu Farestveit. Edda lést í mars sl. eftir langvarandi veikindi.
Bleika slaufan. Konur úr Samhjálp kvenna tóku þátt í átaki gegn brjóstakrabbameini eins og undanfarin ár með því að vera sýnilegar og selja bleiku slaufuna.
Endurskinsmerkin. Samhjálparkonur hafa selt endurskinsmerki bleiku slaufunnar af mikilli elju. Slaufan er til sölu m.a. í verslunum á Landspítalanum.
Leikfimin. Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari hefur í 22 ár boðið konum sem greinst hafa með brjósta-krabbamein, leikfimiskennslu við þeirra hæfi. Leikfimin hefur verið mjög vel sótt og hafa þær konur sem hana sækja látið í ljós mikla ánægju.
Útgáfustarf. Bæklingurinn „Þegar aðstandandi greinist með brjóstakrabbamein“ hefur verið endurbættur og prentaður að nýju.
Samhjálp kvenna mun hér eftir sem hingað til standa vörð um þjónustu og stuðning við konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og gæta hagsmuna þeirra.
Dóra Júlíussen.
Ýmist fræðsluefni: