Styrkur
| Hinn 20. október 1987 var haldinn fundur í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og fólki boðið að skrá sig í samtökin og leggja þeim lið. Á fundinn komu 170 manns. Það voru krabbameinssjúklingar sem vildu leita stuðnings frá öðrum sem reynt höfðu hið sama og miðla af eigin reynslu, svo og aðstandendur krabbameinssjúklinga og velunnarar sem vildu styðja málefnið. Formlegur stofnfundur var síðan haldinn 20. febrúar 1988 og fyrsta stjórnin kosin. Á stofnfundinum voru félagar orðnir 250.Styrkur hefur síðan haldið fundi einu sinni í mánuði á tímabilinu frá september til maí og fengið ýmsa góða fyrirlesara. Auk þess hafa samtökin gengist fyrir hugleiðslunámskeiðum, farið í gönguferðir, haft spilakvöld og fleira.Einn helsti hvatamaður að stofnun samtakanna var Óskar Kjartansson. Ólafía Jónsdóttir var formaður fyrsta árið en síðan hefur Steinunn Friðriksdóttir verið formaður Styrks. | 
|
Tilgangur samtakanna er:
1. Að veita krabbameinssjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning og efla samhjálp þeirra.
2. Að opna umræður um krabbamein og minnka fordóma gagnvart þessum sjúkdómum.
3. Að vinna að sameiginlegum baráttumálum, t.d. aðstöðu til endurhæfingar, bæði andlegrar og líkamlegrar.
Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra.
Stofndagur: 20. október 1987.
Félagsmenn: 350.
Skrifstofa í Skógarhlíð 8 í Reykjavík er opin á fimmtudögum kl. 13.00 til 15.00, sími 540 1900, farsími 896 5808.
Opið hús og fræðslufundir eru í Skógarhlíð 8 í Reykjavík annan þriðjudag í hverjum mánuði á veturna, kl. 20.
Kennitala: 710889-1479.
Reikningsnúmer: 0101-26-158881.
Netfang: styrkur@krabb.is Vefsíða: www.krabb.is/styrkur
Stjórn kosin á aðalfundi 12. apríl 2012:
Formaður: Steinunn H. Friðriksdóttir, Austurströnd 12, 170 Seltjarnarnesi, farsími 896 5808
5525058@internet.is Varaformaður: Hólmfríður Friðriksdóttir, Kaplaskjólsvegi 93, 107 Reykjavík, farsími 862 8487
fridaf@simnet.isMeðstjórnandi: Bertha Biering
Meðstjórnandi: Bryndís Konráðsdóttir
Meðstjórnandi: Snorri Ingimarsson
Meðstjórnandi: Erna Nielsen
Meðstjórnandi: Þrúður Hjaltadóttir
Starfsemi 2011-2012
Formaður og varaformaður sátu aðalfund Krabbameinsfélagsins í maí og formannafund á Akranesi í október.
Átján félagar frá Styrk og þrír frá Stómasamtökunum áttu gleðidaga í frábæru veðri á Löngumýri í Skagafirði, fóru í dagsferð um Tröllaskaga og snæddu hádegisverð í boði Styrks á veitingahúsinu Rauðku á Siglufirði, skoðuðu Síldarminjasafnið, fóru síðan eins og leið lá í gegnum hin frægu göng til Héðinsfjarðar sem skartaði spegilsléttum sjó og fallegum fjöllum. Þá tóku við Ólafsfjarðargöng inn í Ólafsfjörð og þar skoðuðum við fuglasafnið og héldum síðan til Dalvíkur en þar fer enginn um án þess að skoða safnið hans Jóhanns „risa“ og ekki var verra að koma við í Jónasarlundi og hlusta á kvæði Jónasar Hallgrímssonar.
Fjáröflun var í september með aðstoð Lionsfélaga í Eir.
Styrkur er með fundi mánaðarlega frá október til maí. Bergur blindi uppistandari kom og sannaði að ekki gefast menn upp þó eitthvað bjáti á. Í nóvember kom Lára Sigurðardóttir læknir og hvatti konur til að hugsa um heilsu sína og mæta á Leitarstöðina. Jólafundur var haldinn í desember í boði Kiwanisklúbbsins Esju. Á fundinum í janúar var gestur fundarins Þorbjörg Guðjónsdóttir, hómópati LCPH. Þorrablót var á bónda¬daginn, að þessu sinni haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju. Guðrún Bergmann kom í febrúar og talaði um bætiefni. Þorgrímur Þráinsson kom í mars með frábært erindi sem hann nefndi „Hjól lífsins, fjölskyldan og lífið“. Aðalfundur Styrks var haldinn 12. apríl og lokafundur 8. maí. Á lokafundi var kynntur nýr starfsmaður Ráðgjafarþjónustunnar, Sigrún Lillie Magnúsdóttir. Einnig var sagt frá sumarferð sem verður í ágúst og sýndar myndir frá fyrri ferðum á Löngumýri.
Steinunn H. Friðriksdóttir.
Ýmist efni: