Suðurnes

Stofnað: 15. nóvember 1953.  
Félagsmenn: 703.
Þjónustumiðstöð: Smiðjuvöllum 8 í Keflavík, opin á miðvikudögum kl. 13-17 og á fimmtudögum kl. 9-12. Sími: 421 6363. Netfang: goga@internet.is 
Starfsmaður: Anna María Einarsdóttir.
Stuðningshópur: Sunnan 5.
 

Stjórn kosin á aðalfundi 12. apríl 2012:

Formaður: Guðmundur Björnsson, Óðinsvöllum 14, 230 Reykjanesbæ, farsími 662 6989 gudmbj@internet.is
Ritari: Jónína Ágústsdóttir, Borgarvegi 27, 260 Ytri-Njarðvík, farsími 893 4550 jonina.agustsdottir@akurskoli.is 
Gjaldkeri: Jón Axelsson, Nónvörðu 11, 230 Keflavík, farsími 895 2162 jon@skolamatur.is
Meðstjórnandi: Grétar Grétarsson, Heiðarbóli 39, 230 Keflavík, farsími 893 7919  
Meðstjórnandi: Sigurður Þór Sigurðarson, Baugholti 11, 230 Keflavík  sigurdur@hss.is

Starfsemi 2011-2012

Skrifstofa o.fl. Starfsemi félagsins hefur verið rekin með óbreyttu sniði. Starfsmaður sinnir þar tilfallandi störfum sem felast í daglegum rekstri. Í boði eru viðtöl og fræðsla ásamt ýmsu útgefnu efni er lýtur að krabbameinssjúklingum og aðstandendum. Þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir stuðningi hér á Suðurnesjum mættu komur á skrifstofuna vera fleiri. Eins og undanfarin ár hefur starfsmaður haldið sig við heimavitjanir þeirra sem þess óska. Það fyrirkomulag hefur reynst ágætlega. Bæði eru það krabbameinssjúklingar sem leita til okkar í veikindaferlinu og einnig makar þeirra og fjölskyldur. Aðstandendur eru að stórum hluta þeir sem þarfnast stuðnings. Suðurnesjafólk er hvatt til að nýta sér þá fjölbreyttu þjónustu, í formi fræðslu og fyrirlestra, sem er í boði í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð. Víkurfréttir, bæjarblað, birti viðtal við formann stjórnar og starfsmann ásamt umfjöllun um félagið, tilgang þess, starfsvettvang og sögu. Það var kærkomin viðbót við kynningu félagsins út á við. Rauði kross Íslands bauð starfsmanni að sækja leiðbeinandanámskeið í sálrænum stuðningi fyrir tveimur árum. Árlega er sóttur vinnudagur á þeirra vegum. Fræðsla í fyrirtæki er nú að fara af stað þar sem farið er yfir það helsta sem fólk upplifir fyrst eftir að áfall skellur á. Stjórnarfundir Krabbameinsfélags Suðurnesja eru haldnir síðasta fimmtudag í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Teknar hafa verið til umfjöllunar ýmsar styrktarumsóknir. Fréttabréf félagsins er sent út árlega með greiðsluseðlum félagagjalda. Í vetur hafa verið í boði jógatímar.

Aðalfundir. Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja 2011 var haldinn á Flughóteli 14. apríl. Hefð er fyrir því að halda hann í framhaldi af reglubundnum fundi í Rótarýklúbbi Keflavíkur, en klúbburinn er verndari félagsins og hefur stutt starfsemi þess frá upphafi. Að venjulegum aðalfundarstörfum loknum, skýrslum stjórnar og starfsmanns kynntu tveir hjúkrunarfræðingar frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þjónustuna sem þar er í boði. Sérstakur gestur fundarins var nýráðinn forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, Ragnheiður Haraldsdóttir. Hún flutti stutt erindi um starfsemi félagsins og kynnti ný lög um að bætur sjúkdómatrygginga yrðu ekki skattlagðar en félagið hafði barist fyrir því máli. Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja 2012 var haldinn 12. apríl með sama fyrirkomulagi og getið er hér að framan. Gestur fundarins sem flutti fræðsluerindi var Matti Ósvald heilsufræðingur.

Aðrir fundir. Formaður stjórnar og starfsmaður sóttu mjög svo gagnlegan formannafund Krabbameinsfélags Íslands sem haldinn var á Akranesi á haustmánuðum 2011. Einnig sóttu þau ásamt einum fulltrúa glæsilegan aðalfund Krabbameinsfélags Íslands sem haldin var í Skógarhlíð og Nauthól og endaði með móttöku forsetahjónanna á Bessastöðum. Starfsmaður sótti einnig samráðsfundi í Skógarhlíð ásamt starfsmönnum annarra aðildafélaga. Sem fyrr var ánægjulegt að vera þátttakandi í slíkum fundarhöldum hjá okkar öfluga móðurfélagi. Þessir fundir eru einnig mikilvægur vettvangur fyrir aðildafélögin til að koma sínum áherslum á framfæri og efla samstöðu og samheldni.

Fjáröflun. Með hliðsjón af góðri reynslu okkar frá árinu áður var ákveðið að skrá Krabbameinsfélag Suðurnesja aftur sem góðgerðarfélag í áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoni. Það skilaði litlu að þessu sinni en fimm aðilar hlupu í nafni félagsins og ánöfnuðu þeim áheitum. Fjárstyrkir hafa verið greiddir til þeirra sem búsettir eru á svæðinu en hafa þurft að dveljast í Reykjavík meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Með því móti hefur félagið hjálpað þeim sem óskað hafa eftir niðurgreiðslu á dvalarkostnaði á Sjúkrahótelinu. Félaginu barst rausnarleg gjöf frá Þóru Kristínu Hjaltadóttur sem gaf peningaupphæð í minningu föður síns, Hjalta Heimis Péturssonar, sem lést úr krabbameini langt fyrir aldur fram árið 2009. Í tilefni af þrítugsafmæli sínu ákvað Þóra Kristín að leggja félaginu lið með því að afþakka allar afmælisgjafir en óskaði jafnframt eftir fjárframlögum frá sínum nánustu en hún lagði síðan sjálf fram sömu upphæð á móti. Með gjöfinni vill Þóra Kristín heiðra minningu föður síns og ennfremur vekja athygli á að veikindum fylgir oft fjárhagsvandi. Því hvetur hún aðra til þess að gera slíkt hið sama og leggja félaginu lið þar sem margt smátt gerir eitt stórt eins og hún komst sjálf að orði. Þóra Kristín vill þakka fjölskyldu sinni og vinum fyrir að gera sér kleift að geta látið gott af sér leiða með þessum hætti sem nýtist út í samfélagið. Stjórn Krabbameinsfélags Suðurnesja sendir bestu þakkir fyrir þetta rausnarlega framlag. Nokkuð jöfn sala hefur verið í minningakortum félagsins. Þau fást í báðum apótekum bæjarins, Lyfju og Lyfjum og heilsu og einnig hjá Íslandspósti í Keflavík og Garði.

Bleiki mánuðurinn. Hvunndagshetjur voru í sviðsljósinu hjá Krabbameinsfélagi Íslands í október. Því fannst okkur við hæfi að næla bleikri slaufu í Þóru Kristínu þá er getið um hér að framan í tilefni árveknismánaðar kvenna. Bleik lýsing var tendruð á skilti Reykjanesbæjar og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig var fjölmennt saman í Bleika boðið sem Krabbameinsfélag Íslands stóð fyrir í Hörpu.

Karlar og krabbamein. Líkt og undanfarin ár höfum við notið aðstoðar nemenda í 7. bekk í Njarðvík og Sandgerði við fjáröflun. Að þessu sinni var gengið í hús og seld mottumarslyklakippa sem fékk frekar dræmar undirtektir. En mikil stemming ríkir yfir mottusöfnuninni.

Anna María Einarsdóttir og Guðmundur Björnsson.


09.03 2012 - Föstudagur

Þú getur borið fegurstu mottuna.

Dagana 9. – 23. mars munu aðildarfélög Krabbameinsfélagsins selja lyklakippu sem er mótuð eftir „Fegurstu mottunni 2011“. Það var Árni Þór Jóhannesson sem hlaut titilinn í fyrra og nú geta landsmenn fengið sér lyklakippu og borið mottuna allan ársins hring. 
15.08 2011 - Mánudagur

Gaf minningargjöf um föður sinn

Krabbameinsfélag Suðurnesja hefur veitt viðtöku peningagjöf að upphæð 300.000. Þóra Kristín Hjaltadóttir gaf fyrrgreinda upphæð í minningu föður síns, Hjalta Heimis Péturssonar, sem lést úr krabbameini langt fyrir aldur fram árið 2009.


Krabbameinsfélag Suðurnesja

Þjónustumiðstöð:
Smiðjuvöllum 8
Keflavík

Sími: 421 6363.
Opnunartími: Miðvikudaga kl. 13-17 og fimmtudaga kl. 9-12.  

Starfsmaður:
Anna María Einarsdóttir. 
goga@internet.is







Skipta um leturstærð


Leit