2. nóvember 1968.
Félagsmenn: Rúmlega 200.
Stuðningshópur: Samhugur.
Stjórn kosin 2. apríl 2012:
Formaður: Sveinfríður Sigurpálsd., Brekkubyggð 11, 540 Blönduósi, sími 452 4528
sveinfridur@simnet.isRitari: Sigríður Stefánsdóttir, Hólabraut 23, 545 Skagaströnd, sími 452 2644
Gjaldkeri: Vigdís Björnsdóttir, Urðarbraut 15, 540 Blönduósi, sími 452 4565
Meðstjórnandi: Katrín Grímsdóttir, Steiná 3, 541 Blönduósi, sími 452 7162
Meðstjórnandi: Katrín Líndal, Hlíðarbraut 17, 540 Blönduósi, sími 452 4429
Starfsemi 2011-2012
Aðalfundur 2011 fór að þessu sinni fram á Skagaströnd og var þátttaka mjög góð, sem stjórnin kættist yfir. Fenginn var fyrirlesari sem fræddi okkur um stafgöngu til hressingar á líkama og sál og síðan var kennsla á stafina og æfingar úti fyrir á fundarstaðnum. Einnig gengu nokkrar konur í félagið eftir fundinn.
Fjáröflun með sölu á pennum og lyklakippum var haustið 2011. Gekk hún mjög vel með þátttöku nemenda úr grunnskólum á Blönduósi og Skagaströnd sem fengu sölulaun fyrir eins og eðlilegt er. Sala á minningar¬kortum félagsins fer fram í Lyfju á Blönduósi og hjá nokkrum félagsmönnum og er sala á kortunum viðunandi en auðvitað misjöfn milli ára.
Félagið tók að venju þátt í árveknisátakinu í október sem er til að minna á baráttu gegn brjóstakrabbameini. Í tilefni þess sáum við um að lýsa upp í bleikum lit kirkjuna á Skagaströnd og Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi og minna þar með íbúana á átakið.
Félagið veitti tvo styrki vegna krabbameins. Við tókum þátt í sölu Krabbameinsfélagsins á skeggpinnum í mars eða í átakinu Mottumars, karlar og krabbamein, og greiddum nemendum sem seldu fyrir félagið sölulaun. Einnig fékk okkar félag hluta af sölunni.
Félagið færði Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi loftdýnu í sjúkrarúm til eignar en hlutverk hennar er að varna að þrýstingssár komi á líkamann. Á döfinni er síðan að stuðla að því að ungar stúlkur hér í héraði geti fengið bóluefni til varnar leghálskrabbameini. Komið hefur í ljós að heilbrigðisþjónustan tekur ekki þátt í greiðslum fyrir þær stúlkur sem eru fæddar á árinu 1996 og 1997.
Félagar í Krabbameinsfélagi Austur-Húnvetninga telst okkur til að séu nú rúmlega tvö hundruð sem er mikill styrkur fyrir okkur. Jafnframt hafa þó á árinu, sem áður, nokkrir félagar beðið um úrsögn úr félaginu, þar sem þeir búi ekki lengur í sýslunni eða vegna annarra ástæðna. Áríðandi er að afla fleiri félagsmanna í staðinn til þess að félagið geti komið að sem mestu gagni á hverjum tíma eins og nauðsynlegt er.
Sveinfríður Sigurpálsdóttir.