Hafnarfjörður og nágrenni

Stofnað: 10. apríl 1949. 
Félagsmenn: 474 (janúar 2012).
Vefsíða: www.krabb.is/hafnarfjordurb
Netfang: krabb@isl.is 

Stjórn kosin á aðalfundi 26. apríl 2012

Formaður: Anna Borg Harðardóttir, Skipalóni 18, 220 Hafnarfirði, farsími 664 5851, heimasími 555 0306, vinnusími 555 3484,  annaborg@hafnarfjordur.is 
Varaformaður: Hafrún Dóra Júlíusdóttir, Kjóahrauni 18, 220 Hafnarfirði, farsími 862 2267, heimasími 565 1772, hafrun@adalskodun.is
Ritari: Una Björk Harðardóttir, Lækjargötu 30, 220 Hafnarfirði, farsími 822 3028, heimasími 554 1444, vinnusími 411 9450, una.bjork.hardardottir@reykjavik.is 
Gjaldkeri: Jón Auðunn Jónsson, Erluási 48, 221 Hafnarfirði, farsími 824 4888, sími 565 2368, vinnusími 555 3033, jonaudunn@lth.is
Meðstjórnandi: Gunnar Þór Jónsson, Túnhvammi 6, 220 Hafnarfirði, farsími 696 3680, vinnusími 550 2600, gunnar.th.jonsson@heilsugaeslan.is

Starfsemi 2011-2012

Á síðasta starfsári voru haldnir sex stjórnarfundir á milli aðalfunda og sóttu varamenn þá til jafns við aðalmenn. Fundirnir voru haldnir í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu. Helstu verkefnin á liðnu starfsári voru: Þátttaka í Reykjarvíkurmaraþoni, vinna við forvarnarverkefni gegn munntóbaki, bleiki mánuðurinn, skógarganga, aðventukvöld í Hafnarfjarðarkirkju og mottumars.

Anna Borg og Hafrún Dóra sátu aðalfund Krabbameinsfélags Íslands sem að þessu sinni var haldinn laugardaginn 7. maí 2011 í Skógarhlíðinni og hófst hann kl. 9:30 með morgunkaffi. Aðalfundurinn var með hefðbundnum hætti fyrir hádegi en eftir hádegi var aðalfundarauki haldinn í Nauthól eftir góðan hádegisverð á sama stað. Þetta var vinnufundur með þjóðfundarsniði. Eftir að honum lauk var móttaka hjá forseta Íslands á Bessastöðum í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands. 

Það var ákveðið á stjórnarfundi í maí 2011, að Hafrún Dóra og Anna Borg færu í viðræður við framkvæmdarstjóra Kaplakrika og Haukahússins til að setja stefnuna fyrir haustið um átak gegn notkun á munntóbaki í íþróttahúsunum, stoppa neyslu á áhorfendapöllum sem og meðal leikmanna og þjálfara. Einnig var ákveðið að halda áfram með forvarnir í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar og fá Geir Bjarnason, for¬varnarfulltrúa Hafnarfjarðar, til liðs við okkur og skipuleggja og halda utan um verkefnið. Í stuttu máli þá gengu viðræðurnar við Hauka og FH mjög vel og var ákveðið að byrja á fræðslu fyrir alla þjálfara um haustið og á sama tíma hengja upp veggspjöld sem Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar gerði gegn munntóbaksnoktun. Þessir fundir skiluðu sér síðan í undirritun á sameiginlegri yfirlýsingu þar sem munntóbak er með öllu bannað á íþróttasvæðum FH og Hauka. Það voru þau Birgir Jóhannsson frá FH og Guðbjörg Norðfjörð frá Haukum ásamt Geir Bjarnasyni frá Hafnarfjarðarbæ og Önnu Borg frá félaginu sem skrifuðu undir yfirlýsinguna í Hafnarborg að viðstöddum fjölmiðlum og öðrum áhugasömum. Þetta var stór áfangi í baráttunni gegn þessum ófögnuði meðal ungmenna!

Þessi fræðsla og ekki síst fræðslan í 8. bekk grunnskólanna er virkilega að skila árangri þar sem ný rannsókn á munntóbaksnotkun sýnir að hún hefur minnkað umtalsvert mikið og mest hér í Hafnarfirði sem er nú með því minnsta á landsvísu. Mjög ánægjuleg tíðindi. Við fengum Jón Ragnar Jónsson íþróttamann og tónlistarmann til að spjalla við krakkana og má segja að hann hafi algjörlega slegið í gegn og heillað þá! Það er strax búið að ræða við hann að vinna áfram í grunnskólum Hafnarfjarðar næsta vetur og að bæta við sig skólum í Garðabæ og á Álftanesi. Jón Ragnar og Geir eiga þakkir skildar fyrir framlög sín í þessu verkefni.

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar var skráð hjá Reykjavíkurmaraþoni og gátu hlauparar heitið á félagið þannig að hver kílómetri gaf ákveðna krónutölu. Þeim hefur fjölgað sem taka þátt í þessu en því miður var ekki mikið upp úr því að hafa fyrir félagið. Það mætti vinna betur í þessari fjáröflun í næsta hlaupi.

Formannafundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn 8. október á Akranesi. Fundinum lauk með samþykkt á ályktun þar sem lýst var áhyggjum sínum af skerðingu á fjárveitingum til þjónustu við sjúklinga, bæði krabbameinssjúka og aðra. 

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar, Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Samhjálp kvenna stóðu sameiginlega fyrir málþingi um brjóstakrabbamein, undir yfirskriftinni: „Stuðningur skiptir máli“. Þingið var haldið þriðjudaginn 18. október í fundarsal Arion banka. Auður Vésteinsdóttir, myndlistarkona, sá um skreytingu kvöldsins í anddyri bankans. Allir málþingsgestir fengu bleika slaufu í barminn. Húsið opnaði kl. 19:30 og í upphafi þingsins var boðið upp á léttar bleikar veitingar og bleikt konfekt og lék Jóna Einarsdóttir lög á harmonikku. Nanna Sigurðardóttir félagsráðgjafi og verkefnisstjóri á Krabbameinsmiðstöð Landspítalans fjallaði um börnin og samræðurnar í fjölskyldunni þegar krabbamein greinist. Margrét Bárðardóttir, sálfræðingur fjallaði um veikindi og vellíðan, frá streitu til sáttar. Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunar¬fræðingur kynnti meistaraverkefni sitt við Háskóla Íslands sem fjallar um að takast á við lífið eftir krabbamein og um fýslileika ráðgjafarmeðferðar. Að lokum flutti KK nokkur lög fyrir þinggesti. Fundarstjóri var Siv Friðleifsdóttir alþingismaður.

Kvöldganga í Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn var farin þann 1. nóvember 2011 á vegum Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Rúmlega sextíu manns mættu við Gróðrastöðina Þöll til að njóta skógarins í skjóli myrkurs og ganga saman í ævintýraljóma lukta! Genginn var svonefndur Værðarstígur, sem félagar úr Lionsklúbbnum Ásbirni lögðu sumarið 2011. Steinar Björgvinsson skógfræðingur fræddi göngumenn um næturstaði fugla, Jóhann Reynir, skáld með meiru, las upp ljóðin sín í göngunni. Eftir gönguna var boðið upp á heitt súkkulaði og meðlæti.

Aðventukvöld Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar í samvinnu við Hafnarfjarðarkirkju, var haldið miðviku¬daginn 7. desember. Anna Borg leiddi athöfnina og séra Þórhallur Heimisson annaðist ritningarlestur og flutti bæn. Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri Hjallastefnunnar flutti hugvekju. Tónlist var í umsjón Erlu Jóna¬tansdóttur söngkonu, við undirleik Baldurs Tryggvasonar. Í lok athafnarinnar var boðið upp á kakó og piparkökur í safnaðarheimilinu þar sem gestir gátu notið samveru og spjallað saman. 

Nú í mars hófst fjáröflunarátakið „Karlar og krabbamein – Mottumars“ á vegum Krabbameinsfélags Íslands. Hafnarfjarðarfélaginu var boðið að taka þátt og selja lyklakippu, eftirmynd verðlaunamottunnar frá því 2011. Allur ágóðinn af sölunni átti að renna til félagsins. Við seldum 400 kippur, mest á mottudeginum þann 16. mars. Nokkrir félagar stóðu í anddyri Fjarðarkaups og seldu vel. 

Við styrktum nokkur önnur verkefni á liðnu starfsári svo sem kaup á sjónvarpi í íbúð á Rauðarárstíg, námskeið í Bretlandi í húðflúri (tattoo) á geirvörtu og vörtubaug á konum sem hafa farið í uppbyggingu á brjóstum eftir aðgerð, kaup á myndavél til að greina betur húðkrabbamein. 

Minningarkort félagsins eru seld á nokkrum stöðum hér í bænum og gefur það okkur nokkrar tekjur. Þau er einnig hægt að fá á netinu hjá Krabbameinsfélagi Íslands.

Stjórnin fór í átak á haustmánuðum til að afla nýrra félaga með því að vera með félagalista áberandi á vinnustöðum sínum. Átján nýir bættust við en þrír sögðu sig úr félaginu sökum aldurs. 

Samþykkt var á aðalfundi að félagsgjöld yrðu 1.000 kr. fyrir almenna félagsmenn og 10.000 kr. fyrir styrktarfélaga og fyrirtæki. Stjórnin sér ekki ástæðu til hækkunar félagsgjalda. 

Anna Borg Harðardóttir.

 

 

14.03 2012 - Miðvikudagur

Sala á fegurstu mottunni í Hafnarfirði

Krabbameinsfélagið Hafnarfirði ætlar að selja lyklakippuna "fegursta mottan 2011" til stuðnings starfi sínu í Firðinum Hafnarfirði á sjálfan Mottudaginn 16. mars. 
09.03 2012 - Föstudagur

Þú getur borið fegurstu mottuna.

Dagana 9. – 23. mars munu aðildarfélög Krabbameinsfélagsins selja lyklakippu sem er mótuð eftir „Fegurstu mottunni 2011“. Það var Árni Þór Jóhannesson sem hlaut titilinn í fyrra og nú geta landsmenn fengið sér lyklakippu og borið mottuna allan ársins hring. 








Skipta um leturstærð


Leit