02.12 2010

Aðventukvöld í Hafnarfjarðarkirkju

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkja efna til aðventukvölds í Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 2. desember 2010 kl. 20.00.

Séra Sigfinnur Þorleifsson flytur hugvekju.

Tónlist er í umsjón Ívars Helgasonar og Margrétar Árnadóttur.

Séra Þórhallur Heimisson leiðir athöfnina.

Í lok athafnar býður Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar upp á kakó, piparkökur og konfekt í safnaðarheimilinu.

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkja.








Skipta um leturstærð


Leit