
Í síðustu viku skrifuðu fulltrúar frá FH og Haukum undir sameiginlega yfirlýsingu með Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæ þess efnis að öll notkun á munntóbaki verði bönnuð á íþróttasvæðum Hauka og FH. Undirskriftin fór fram í Hafnarborg, í Hafnarfirði.
Yfirlýsingin hljómar svo:
Stjórnendur, þjálfarar og starfsmenn hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar og Knattspyrnufélaginu Haukum ásamt Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæ hvetja alla sem tengjast FH og Haukum til að halda á lofti áróðri gegn munntóbaksnotkun og beita sér gegn allri tóbaksnotkun, sérstaklega munntóbaki í tengslum við íþróttaiðkun.
Ekki er æskilegt að munntóbak sé notað í tengslum við íþróttaiðkun af iðkendum, þjálfurum og öðrum þeim sem koma að skipulögðu starfi íþróttahreyfingarinnar. Notkun á munntóbaki er bönnuð á íþróttasvæðum FH og Hauka.
Minnt er á að starfsmenn og iðkendur íþróttahreyfingarinnar gegna mikilvægu fyrirmyndarhlutverki innan hreyfingar sem utan og neysla munntóbaks á aldrei samleið með iðkun íþrótta.