15.11 2010

Skorað á stjórnvöld að standa vörð um vímuvarnir

Við opnun Vímuvarnaviku 2010 (Viku 43) í Þjóðleikhúsinu var undirrituð áskorun fulltrúa 22 frjálsra grasrótarsamtaka um mikilvægi samstarfs í vímuvörnum og fræðsluátaks um skaðsemi kannabis. Krabbameinsfélag Reykjavíkur er í hópi þessara samtaka.

Áskorunin hefur nú verið afhent stjórnvöldum og tók Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, við henni fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Fulltrúar þessara samtaka notuðu tækifærið og ítrekuðu við ráðherra nauðsyn þess að stjórnvöld standi vörð um vímuvarnir og það samstarf sem nauðsynlegt er í málaflokknum. Einnig var bent á að ráðamenn þyrftu að gæta þess að sá mikli félagsauður sem býr í tilvist og starfi þessara frjálsu samtaka fari ekki forgörðum þegar kemur að stefnumörkun í forvarnaverkefnum framtíðar.


Krabbameinsfélag Reykjavíkur

Skógarhlíð 8,
105 Reykjavík.

Sími: 540 1900.
Fax: 540 1910.

Framkvæmdastjóri:
Guðlaug B. Guðjónsdóttir
gbg@krabb.is

Formaður:
Nanna Friðriksdóttir
nannafri@landspitali.is







Skipta um leturstærð


Leit