Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur gefið út "Spurningar og svör um krabbamein og kynlíf". Þetta er fræðsluefni sem sett er á vefsíðu Krabbameinsfélagsins og þar er hægt að lesa það eða prenta það út.
Unnið hefur verið að gerð fræðsluefnisuns í nokkurn tíma, enda talin mikil þörf fyrir upplýsingar af þessu tagi á íslensku. Útgáfan er í tengslum við umræður á svonefndum læknadögum í dag og einnig í tengslum við opnun deildar á Landspítalanum þar sem veitt er ráðgjöf varðandi kynlíf (sjá www.kynlifogkrabbamein.is).
Fræðsluefnið er á fimm síðum í stærðinni A4 og er aðgengilegt hér á pdf-formi.