Krabbameinsfélög Austfjarða og Austurlands bjóða þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra á fyrirlestraröð á fimmtudagskvöldum í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 19.30.
Ætlunin er að fræðast um það sem upp getur komið þegar einhver í fjölskyldunni greinist með krabbamein og lífið og tilveruna í kjölfarið. Fagfólk sér um hvert kvöld fyrir sig með u.þ.b. ½ tíma fyrirlestri og svara fyrirspurnum. Umræður og kaffisopi á eftir.
26. maí - Mikilvægi hreyfingar
Heitt á könnunni - Aðgangur ókeypis
Þjónustuskrifstofa Krabbameinsfélagana er að Búðareyri 15, Reyðarfirði,
Nánari upplýsingar eru í síma 869-0810, 474-1530 eða netfangið
kraus@simnet.is