Nemendur í 7. og 8. bekk Grunnskólans á Fáskrúðsfirði efndu í vetur til söfnunar sem tengdist þátttöku þeirra í keppninni um reyklausan bekk og skilaði söfnunin um 77 þúsund krónum. Upphæðin mun nýtast við gerð nýrrar fræðslumyndar um reykingatengda lungnasjúkdóma, sem Krabbameinsfélagið vinnur að ásamt Samtökum lungnasjúklinga.
Sagt var frá þessari gjöf á aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands í maí og þetta nefnt sem dæmi um skóla sem vinna vel að tóbaksvörnum.
Mynd: Frá afhendingu söfnunarfjársins. Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands er lengst til hægri. Við hlið hennar er Álfheiður Hjaltadóttir formaður Krabbameinsfélags Austfjarða. Nemendurnir eru, frá hægri, Unnar Ari Hansson, Rebekka Aradóttir og Sigurbjörg Sigurðardóttir.