Íbúðir
Óhætt er að segja að íbúðirnar að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík hafi notið mikilla vinsælda, en þær eru ætlaðar krabbameinssjúlingum sem búsettir eru á landsbyggðinni og þurfa að fara í meðferð í Reykjavík vegna sjúkdóms síns.
Íbúðirnar eru nú átta. Krabbameinsfélag Íslands á helming í sex íbúðum á móti Rauða krossi Íslands, eina íbúð eiga Krabbameinsfélagið og Hússjóður Öryrkjabandalagsins og ein er eign Krabbameinsfélagsins og Styrktarsjóðs Sambands íslenskra bankamanna.
Fyrstu tvær íbúirnar voru teknar í notkun 27. júní 1991, á 40 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands. Þær voru við Lokastíg en voru síðar seldar og aðrar keyptar í staðinn við Rauðarárstíg. Síðan hafa allar viðbótaríbúðirnar verið þar, sjö eru á annarri hæð en ein á þeirri þriðju.
Upplýsingar og úthlutun er á geisladeid Landspítalans í síma 543 6800 eða 543 6801.