10.01 2012

Leitarstöð Krabbameinsfélagsins annast ómskoðun varðandi svokallaða PIP brjóstapúða

Velferðarráðuneytið hefur gefið út aðgerðaáætlun heilbrigðisyfirvalda vegna svokallaðra PIP brjóstapúða sem 440 konur hér á landi eru með. Konunum verður boðin ókeypis ómskoðun til að kanna ástand púðanna og er ráðuneytið að semja við Krabbameinsfélagið um að framkvæma skoðuðina.  

Samkvæmt aðgerðaáætlunni verður öllum konum sem fengið hafa PIP-brjóstapúða á árunum 2000–2010 sent bréf á næstu dögum þar sem þeim er boðið að koma í ómskoðun á næstu þremur mánuðum til að ganga úr skugga um hvort brjóstapúðarnir leki. Ef konurnar eru sjúkratryggðar hér á landi verður skoðunin þeim að kostnaðarlausu.  

Skimun

Samkvæmt áætluninni mun Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands annast framkvæmd skoðananna og jafnframt veita konunum fræðslu og ráðgjöf, samkvæmt samningi við Velferðarráðuneytið sem verið er að leggja á lokahönd. Í einhverjum tilvikum kunna skoðanir að fara fram á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni en þá í samráði við Krabbameinsfélag Íslands. Miðað verður við að konurnar komi til skoðunar á næstu þremur mánuðum.

Krabbameinsfélagið mun senda út nánari upplýsingar síðar í vikunni. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit