Endurhæfing

 

30.09 2009 - Miðvikudagur

Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga

Við útskrift af heilbrigðisstofnun skal sjúklingur fá, eftir því sem þörf krefur, leiðbeiningar um þýðingarmikil atriði er varða eftirmeðferð, svo sem lyfjagjöf, mataræði, þjálfun og hreyfingu. Ef þess er óskað skulu leiðbeiningarnar gefnar skriflega. Læknabréf og vottorð vegna veikinda, slysa, sjúkrahúslegu og þess háttar skulu afgreidd án ástæðulauss dráttar (22. grein laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997).

 

Landspítalinn í Fossvogi
Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga er til húsa á fyrstu hæð (jarðhæð) Landspítalanum í Fossvogi, sími 543 9134. Endurhæfingin er niðurgreidd og þurfa sjúklingar að fá tilvísun frá lækni til að geta nýtt sér þjónustuna. Í endurhæfingunni er boðið upp á ráðgjöf, einstaklingsþjálfun, þjálfun í þreksal og meðferð við sogæðabjúg.

Endurhæfingin Grensási
Í sundlaug Landspítalans Grensási er boðið upp á hópþjálfun í laug tvisvar í viku, á miðvikudögum og föstudögum kl. 14.30. Upplýsingar veitir Mónika Karlsdóttir móttökustjóri í síma 543 9319 og Sigrún Knútsdóttir sjúkraþjálfari í síma 543 9104

Landspítalinn við Hringbraut
Í sjúkraþjálfun Landspítalans við Hringbraut er boðið upp á heilsurækt í tækjasal undir eftirliti sjúkraþjálfara tvisvar í viku. Boðið er uppá hópþjálfun og einnig er hringt í allar konur sem hafa farið í stærri aðgerðir vegna brjóstakrabbameins og þeim boðin þjálfun. Upplýsingar veitir móttökuritari í síma 543 9300.

 

12.11 2009 - Fimmtudagur

Önnur endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga.

Ljósið  

Ljósið, iðjuþjálfun og endurhæfing á Langholtsvegi 43, Reykjavík www.ljosid.is

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.

Ljósið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Í Ljósinu er starfrækt handverkshús og þar er einnig í boði fjölbreytt dagskrá fyrir fólk greint með krabbamein og aðstandendur þess. Meðal þess sem boðið er uppá er: leirlist, sjálfstyrking, jóga, Tai chi leikfimi, slökun, gönguhópur, svæðanudd, fræðsla, aðstandendahópur og samvera.

 

Starfsemi Ljóssins er rekin alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:00, auk þess sem sérskipulögð námskeið eru á kvöldin og laugardögum. Yfirumsjón með starfinu hefur Erna Magnúsdóttir, iðjuþjálfi.

 



Ráðgjöf og stuðningur

Ráðgjafarþjónustan
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Sími: 540 1900
Gjaldfrjáls sími: 800 4040
8004040@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit