Karlmenn og krabbamein

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins veitir þeim sem leita til Krabbameinsfélagsins upplýsingar, leiðbeiningar og stuðning varðandi krabbamein og forvarnir gegn krabbameini.

 

Í Ráðgjafarþjónustunni eru veittar upplýsingar um hvernig bregðast megi við ef einkenna verður vart í líkamanum og fólki leiðbeint um hvar hægt er að fá úrlausn mála eða upplýsingar um einkennin sem gætu verið vísbending um krabbamein. Einnig eru veittar upplýsingar um hin ýmsu krabbamein.

 

Starfsfólk Ráðgjafarþjónustunnar eru félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar. Þar má fá ýmsar hagnýtar upplýsingar og aðstoð varðandi réttindamál. Starfsfólk sinnir einnig hagsmunagæslu fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.

 

Allir geta nýtt sér þjónustuna óháð búsetu og fólk sem er statt eða búsett erlendis er velkomið að nýta sér þjónustuna hvort sem þeir eiga aðstandanda með krabbamein eða eru sjálfir að takast á við veikindi.

Starfsmenn halda fyrirlestra hjá félagasamtökum, fyrirtækjum og skólum.

Þjónustan er fólki að kostnaðarlausu.  

 

Ráðgjafarþjónustan er til húsa á fyrstu hæð í Skógarhlíð 8 Reykjavík (húsi Krabbameinsfélagsins) og er hægt að koma á staðinn eða hafa samband í síma 5401900. Gjaldfrjáls símaráðgjöf og símsvari í síma 8004040 og netfangið er  8004040@krabb.is

 

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins www.krabb.is/rad og á www.karlmennogkrabbamein.is.

 

Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins Framför á www.framfor.is má nálgast margvíslegar upplýsingar um krabbamein í blöðruhálskirtli ásamt ýmsum öðrum fróðleik. Jafnframt eru hlekkir inn á síðunni á ýmsa áhugaverða fyrirlestra sem haldnir hafa verið.

 

Á vef krabbameinsskránnar http://www.krabbameinsskra.is/?id=i4 er hægt að lesa sér til um mismunandi krabbamein og tíðni þeirra ásamt öðrum fróðleik.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit