Sálrænn stuðningur
Umræðufundir um hvaða áhrif greining krabbameins getur haft á einstaklinginn og aðstandendur hans, á þriðjudögum kl. 13:00 til 14:00 í Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, Reykjavík.
Rætt er um andlegt og líkamlegt álag sem getur fylgt því að greinast með krabbamein. Fjallað er um algeng hugræn, tilfinningarleg, líkamleg og hegðunarleg einkenni áfalla og skoðaðar leiðir til að vinna gegn álagi og streitu.
Almennt er litið á það sem áfall að greinast með krabbamein og að því fylgi mikið álag fyrir krabbameinssjúklinginn og fjölskyldu hans (Kübel-Ross, 1983). Rannsóknir hafa sýnt að fagleg aðstoð og stuðningur geta minnkað álagið og skilað sér í bættum lífsgæðum fyrir krabbameinssjúklinga (Fawsy et al., 1999).
Fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra eru hvattir til að koma og taka þátt í umræðunum.
Allir eru velkomnir