Námskeið

Skráning er hafin á næsta námskeið 2012 

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga sem vilja hætta að reykja.  Samhliða almennum námskeiðum félagsins er boðið upp á sérstök námskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja og félagasamtaka sé óskað eftir því. Allir sem sækja námskeiðið fá einstaklingsviðtal fyrir eða í upphafi námskeiðs. Þátttakendur hittast sex sinnum á fimm vikna tímabili, að námskeiði loknu er þátttakendum fylgt eftir í ár. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðning til að takast á við reyklausa framtíð.  Fagleg hjálp bætir árangur.

Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur.  Námskeiðið kostar 13.600 kr. (sem jafngildir því að reykja pakka á dag í 16 daga, þegar pakkinn kostar 850 kr).Öryrkjar, eldri borgarar , atvinnulausir og hjón fá 10% afslátt. Hægt er að skrá sig á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900.

Nánari upplýsingar um námskeið má sjá hér eða hafa samband í síma  540 1900 og á reykleysi@krabb.is


Vefsíður fyrir þá sem vilja hætta að reykja   

   
 

    




Hætta að reykja

Reykinganámskeið
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Sími: 540 1900
reykleysi@krabb.is

Umsjónarmaður:
Ingibjörg Katrín Stefánsdóttir







Skipta um leturstærð


Leit