Námskeið í
árvekni/gjörhygli
Á undanförnum áratugum hefur svokölluð árvekniþjálfun, stundum kallað „gjörhygli“ (mindfulness) verið innleidd sem viðbót við hefðbundna læknisfræðilega og sálfræðilega meðferð. Þar er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að árvekniþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan og bætir heilsufar og dregur úr streitu, kvíða og depurð. Þjálfunin felst m.a. í því að læra að þekkja hugsanir sínar, tilfinningar og það sem við finnum fyrir í líkamanum. Áherslan er á að læra að nema staðar „hér og nú“ með stuttum hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun . Þannig má öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
Námskeiðið er á vegum Sálfræðiþjónustu geðsviðs LSH í samvinnu við Krabbameinsfélagið og er fyrir sjúklinga og/eða aðstandendur.
Leiðbeinandi: Margrét Bárðardóttir sálfræðingur
Skráning á netfang: margreba@landspitali.is s. 824 58 05
Staður: Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð. Námskeiðið hefst mánudaginn 20.feb. kl. 14.30-16.00
Alls 6 skipti og lýkur 26.mars. Kostnaður: Kr.6.600