25.02 2012 - Laugardagur

Vísindi á laugardegi - næsti fræðslufundur á laugardaginn

Nú er komið að öðrum fræðslufundinum í fræðslufundaröð Göngum saman um gildi grunnrannsókna á brjóstakrabbameini, „Vísindi á laugardegi - Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini“.

Laugardaginn 25. febrúar kl. 13 mun rannsóknahópur Þórarins Guðjónssonar dósents og Magnúsar Karls Magnússonar prófessors taka á móti félögum Göngum saman og öðrum áhugasömum í Læknagarði og segja frá rannsóknum á stofnfrumum og hvernig þær hjálpa til við að skilja betur eðli og uppruna brjóstakrabbameins.

Þórarinn mun byrja fræðslufundinn með erindi í fyrirlestrarsalnum á 3. hæð í Læknagarði, byggingu Læknadeildar Háskóla Íslands, Vatnsmýrarvegi 16 og síðan verður fólki boðið að skoða rannsóknastofu hópsins á hæðinni fyrir ofan. Boðið verður upp á kaffi.

Sjá upplýsingar um einstaka fundi í fræðslufundaröðinni „Vísindi á laugardegi“ á viðburðardagatalinu á heimasíðunni.


Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi

Ráðgjöf og stuðningur

Ráðgjafarþjónustan
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Sími: 540 1900
Gjaldfrjáls sími: 800 4040
8004040@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit