Á morgun, laugardaginn 26. mars verða haldnir styrktartónleikar fyrir Krabbameinsfélag Íslands í tilefni af Mottumars. Allur ágóði mun renna óskiptur til Krabbameinsfélagsins.
Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína.
Eftirfarandi listamenn koma fram:
- Böddi úr Dalton
- Morgan Kane
- Morning after youth
- Noise
- UnderCover
- Endless Dark
- Finnegan.
Aðgangseyrir er1 500 kr. og fyrir þá sem skarta mottu 1000 kr. (Auðvitað frjálst að styrkja félagið meira)
Húsið opnar kl 21:30
Endilega látið sjá ykkur á Sódóma og styrkið gott málefni.