
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, var í viðtali hjá Bergsson og Blöndal laugardaginn 26. mars. Ragnheiður ræddi um átakið Mottumars og mikilvægi hans, sem og að Margrét og Felix fóru yfir topp 10 lista yfir áhrifamestu motturnar.
Hér má hlusta á viðtalið en það hefst þegar um 2 tímar eru búnir af þættinum.
Margrét og Felix fengu fjöldann allan af fólki til að velja áhrifamestu motturnar í mannkynssögunni og var útbúinn topp tíu listi. Margir voru nefndir svo sem Stalín, Salvador Dalí og Walt Disney en þeir komust ekki á listann.
En neðangreindir komust á lista:
10.sæti - Hulk Hogan
9. sæti - Gissur Sigurðsson fréttamaður
8. sæti - Borat
7. sæti - Þorsteinn frá Hamri
6. sæti - Chaplin
5. sæti - Sigurður Guðmundsson í Hjálmum
4. sæti - Tom Selleck
3. sæti - Hitler
2. sæti - Heiner Brandt
1. sæti - Arnar Björnsson íþróttafréttamaður