
Motta er frábært samstöðutákn eins og sjá má á efrivörum þúsunda karla um land allt um þessar mundir. En mottunni fylgir ábyrgð og nú eru allra síðustu forvöð að styðja við baráttuna gegn krabbameinium karla með því að heita á einstaklinga eða lið á
www.mottumars.is.
Keppninni lýkur formlega, 31. mars 2011 kl. 19:48.
Keppnin harðnar mjög á síðustu metrunum en þó er enn góður möguleiki fyrir öfluga mottukappa að koma sér ofar á lista og aðstoða Krabbameinsfélagið í baráttunni gegn krabbameinum karla. Nú í dag hafa safnast ríflega 25 milljónir en um 1900 einstaklingar og tæplega 400 lið eru skráð til leiks.
Arion banki hefur skotist fram úr liði Alcoa Fjarðaál á síðustu metrunum, en strax á eftir þeim koma lið Eimskipafélags Íslands, Byko, Össurar og Austfjarðarvíkinganna.
Í einstaklingskeppni hefur safnast mest í nafni Magnúsar heitins Guðmundssonar, sem lést úr krabbameini fyrr í mánuðnum. Þar á eftir koma í öðru og þriðja sæti Bjarndís Sjöfn Blandon og Bergsveinn Alfons Rúnarsson, en þau taka bæði þátt í áheitakeppninni vegna baráttu ættingja við krabbamein.
Mottumars snýst ekki bara um glens og grín en fjármunir sem safnast verða nýttir til fræðslu, forvarna, rannsókna og ráðgjafar.
Við hvetjum alla til að láta mottuna skipta máli, fara á
mottumars.is og heita á einstaklinga og/eða lið!