
Alls söfnuðust tæplega kr. 30.000.000 í Mottumarskeppninni 2011
- Lið Arion banka sigraði í liðakeppni en söfnun í nafni Magnúsar Guðmundssonar í einstaklingskeppni
- Fallegustu mottuna á Árni Þór Jóhannesson - valin af Meistarafélagi hárskera
Mottumars 2011 – árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands - lauk kl. 19:48 í kvöld og voru úrslitin kunngjörð nokkrum mínútum síðar við athöfn í Sjóminjasafni Íslands.
Söfnun í nafni Magnúsar Guðmundssonar, sem lést úr hvítblæði fyrr í mánuðinum, fékk mest af áheitum í einstaklingskeppninni. Í öðru sæti varð Bjarndís Sjöfn Blandon og Bergsveinn Alfons Rúnarsson í hinu þriðja. Í liðakeppninni náði lið Arion banki öruggu forskoti en annað sætið hreppti lið BYKO og lið Landsvirkjunar endaði í þriðja sæti.
„Við erum þakklát fyrir þann mikla stuðning sem árvekni- og fjáröflunarátakið hefur hlotið meðal almennings og það hefur verið mjög gaman að sjá allan þann fjölda karlmanna sem skartar mottum í mánuðinum! Þá viljum við einnig þakka öllum þeim ótal aðilum sem lögðu vinnu sína af mörkum í þágu Mottumars,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Þetta er í fjórða sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir árvekniátaki sem beinist að karlmönnum og krabbameini og í annað sinn sem efnt er til átaksins undir merki Mottumars. Forstjóri Krabbameinsfélagsins telur víst að Mottumars sé kominn til að vera þó framkvæmd átaksins geti orðið með misjöfnum hætti. Alls skráðu um 1.800 einstaklingar sig til þátttöku í Mottumars 2011 og 400 lið.
Mottan 2011
Alls söfnuðust tæplega 30 milljónir króna í Mottumarskeppninni en flest áheit í einstaklingskeppninni hlaut Magnús Guðmundssonar sem lést fyrr í mánuðinum úr hvítblæði, en ríflega tvær milljónir króna söfnuðust í nafni hans. Það var ekkja Magnúsar, Ingibjörg Ragnarsdóttir, sem tók við verðlaununum og þakkaði hún öllum þeim sem hétu á Magnús. Næstflest áheit fékk Bjarndís Sjöfn Blandon og Bergsveinn Alfons Rúnarsson varð í þriðja sæti en bæði þekkja það af eigin raun að sjá karlkyns ættingja berjast við krabbamein.
Liðakeppnin í ár fór hægt af stað en harðnaði mjög undir lokin. Það var svo lið Arion banka sem stóð uppi sem sigurvegari en í öðru sæti var lið BYKO og í þriðja sæti var lið Landsvirkjunar.
Fulltrúar sigurvegaranna í einstaklings- og liðakeppninni fengu afhenta forláta bikara til marks um árangurinn og heiðursskjal um að þeir beri með réttu titilinn: Mottan 2011. Þá fengu þeir einnig afhentar veglegar grænmetiskörfur frá Sölufélagi garðyrkjumanna og körfur með rakstursvörum frá Wilkinson.
Fallegasta mottan
Meistarafélag hárskera veitti jafnframt sérstök verðlaun fyrir „fallegustu mottuna 2011“ og var sigurvegarinn valinn úr hópi allra þeirra 1.800 einstaklinga sem skráðu sig til leiks í Mottumars 2011. Það var einróma niðurstaða dómnefndar Meistarafélags hárskera að verðlaunin skyldu ganga til Árna Þórs Jóhannessonar fyrir fegurstu mottuna út frá fagurfræðilegum sjónarmiðum, heildarútliti og umhirðu. Kona Árna Þórs, Soffía Sigurðardóttir tók við verðlaununum þar eð Árni Þór gat ekki prýtt salinn á verðlaunaafhendingunni í Sjóminjasafninu.
Aukinn stuðningur við karlmenn með krabbamein
„Þær góðu undirtektir sem Mottumars fær eru til marks um þörfina: Á hverju ári greinast rúmlega 700 karlar að meðaltali með krabbamein. Þeir greinast að jafnaði nokkru seinna en konur sem veldur því að erfiðara er að kljást við sjúkdóminn. Við viljum breyta þessu og auka aðstoð við karlmenn sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Þá er einnig mikilvægt að leggja fé í rannsóknir á helstu krabbameinum karla,“ segir Ragnheiður.
„Tilgangur Krabbameinsfélags Íslands er að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður stjórnar Krabbameinsfélagsins. „Það er til fyrirmyndar hvernig Íslendingar standa saman í þessari baráttu og þeir fjármunir sem svona átak skilar nýtist fjölmörgum einstaklingum og fjölskyldum þeirra. Við þekkjum öll einhvern sem greinst hefur með krabbamein,“ segir Sigríður og bendir þeim sem vilja styrkja Krabbameinsfélagið með reglulegum hætti á að hægt er að skrá sig sem Velunnara Krabbameinsfélagsins á heimasíðunni; www.krabb.is eða með því að hringja í félagið.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í síma 540 1930.
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í símum 540 1926 eða 693 0175.