100 vísindamenn koma fram í bandaríska læknatímaritinu The Lancet og ítreka að reykingar, ofnotkun salts, léleg næring, skortur á hreyfingu og ofneysla áfengis leiðir til allt of margra dauðsfalla.
Með því að leggja fram u.þ.b. 9 milljarða dollara á ári er hægt að lækka dánartíðni um tvö prósent á ári, sem jafngildir 36 milljón mannslífum á 10 árum. Auk þess mun það að hafa jákvæð áhrif fyrir heilsu milljónir manna og hagkerfi viðkomandi landa. Sem dæmi má nefna er hægt að fara í herferðir með það að leiðarljósi að kenna fólki að borða minna salt og að fá matarframleiðslufyrirtæki til að minnka salt í vörum sínum. Það jafngildir því að bjarga 8,5 milljón mannslífum á 10 árum. Það er ekki verið að tala um að banna salt heldur að minnka notkun þess um fimmtán prósent. (Avisen.dk, 2011/02/05)
http://avisen.dk/tobak-og-salt-draeber-millioner_145742.aspx