Samfélag í nýjan búning er yfirskrift nýrrar stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög og velja íþróttafélögin góðgerðafélag til að styrkja og bera merki þess á búningi sínum. Landsbankinn og Boltafélag Ísafjarðar hafa undirritað styrktarsamning til tveggja ára sem skiptist á milli yngri flokka félagsins og meistaraflokks.
Boltafélag Ísafjarðar (BÍ) ákvað að merki Krabbameinsfélagsins Sigurvonar myndi prýða búninga félagsins næstu ár. Stofnaður verður áheitasjóður fyrir Sigurvon í útibúi Landsbankans á Ísafirði og mun bankinn greiða í sjóðinn ákveðna upphæð fyrir hvern sigur meistaraflokka BÍ/Bolungavíkur á Íslandsmótum.Landsbankinn mun að auki styrkja Sigurvon að upphæð 500.000 krónur.
Áður en fyrsti leikur BÍ/Bolungarvíkur hófst í 1. deild á laugardag afhenti fulltrúi Landsbankans BÍ-mönnum ávísun upp á 500.000 krónur sem þeir afhentu formanni Krabbameinsfélagsins Sigurvonar, Sigurði Ólafssyni.