Í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands var Heilsuhlaupið haldið í tuttugasta sinn miðvikudaginn 8. júní 2011. Fjölmargir tóku þátt í hlaupinu en heildarfjöldi þátttakenda var 387.
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra ræsti hlaupið og hvatti þátttakendur til dáða. „Þetta var mikil skemmtun, fjör og kraftur. Þessi mikli áhugi er hvatning og við munum stefna að því að Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins verði árlega í framtíðinni,“ sagði Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Það var 9 ára stúlka, Daðey Ásta Hálfdánsdóttir, sem bar sigur úr býtum í 3 km hlaupinu á tímanum 14:42 og 15 ára drengur, Þorgeir Kristjáns Þorgeirsson, á 13:39. Þau fengu bæði gjafakörfu frá Sölufélagi garðyrkjumanna og mánaðarkort í Baðstofunni í Laugum. Í 10 km hlaupinu unnu svo Birgir Sævarsson og Helle Pia Sörensen. Birgir hljóp á 35:37 og Helle á 41:59. Þau fengu bæði gjafakort að verðmæti 50.000 krónur frá Asics og gjafakörfu frá Sölufélagi garðyrkjumanna. Tími var mældur hjá öllum og úrslit verða birt eftir aldursflokkum á vefsíðu Krabbameinsfélagsins,
www.krabb.is og á
www.hlaup.is. Aðalstyrktaraðilar voru Arion banki og Asics.
Fjölmörg útdráttarverðlaun voru í boði og var heildarverðmæti vinninga um 500.000 krónur. Hótel Hekla gaf gistingu og mat, Sölufélag garðyrkjumanna grænmetiskörfur, MS gaf matarkörfu, Nói Síríus súkkulaðikörfur, Bláa Lónið gaf nudd og baðferðir, Asics gaf boli, Salka Forlag bækur, Subway og Krúska gáfu máltíðir, Nivea umboðið gaf gjafapakka og ÍTR bauð sundkort fyrir börn og fullorðna. Þeir sem ekki náðu að vitja verðlauna sinna geta nálgast þau í Skógarhlíð 8 en listinn yfir verðlaunahafa er birtur
hér.