Í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands, 27. júní, var ákveðið á hátíðarfundi stjórnar félagsins að kjósa þrjá nýja heiðursfélaga til setu í Heiðursráði Krabbameinsfélagsins. Þetta eru Guðrún Sigurjónsdóttir, Jóhannes Tómasson og Steinunn Friðriksdóttir. Í ráðinu voru níu heiðursfélagar en fyrir nákvæmlega aldarfjórðungi var Vigdís Finnbogadóttir kjörin fyrst allra í Heiðursráðið. Þetta er æðsta viðurkenning sem félagið veitir.
Guðrún Sigurjónsdóttir var formaður Samhjálpar kvenna frá 2000 til 2010. Hún var í stjórn Krabbameinsfélags Íslands frá 2005 til 2011, síðast sem varaformaður.
Jóhannes Tómasson var í stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur frá 1996 til 2007, þar af formaður í 9 ár. Hann var í stjórn Krabbameinsfélags Íslands frá 1999 til 2007, lengst af sem varaformaður.
Steinunn Friðriksdóttir hefur verið formaður Styrks síðan 1989. Hún átti mikinn þátt í því að fyrstu íbúðirnar fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur voru keyptar fyrir tuttugu árum og hefur alla tíð verið tengiliður Krabbameinsfélagsins við Landspítalann vegna þeirra.
Auk þess sem hér er talið hafa öll þessi þrjú verið í nefndum og ráðum félagsins og eru verðugir fulltrúar þeirra sem vinna óeigingjarnt hugsjónastarf í þágu félagsins og málstaðar þess.
Guðrún Sigurjónsdóttir, Jóhannes Tómasson og Steinunn Friðriksdóttir voru kosin í Heiðursráð Krabbameinsfélagsins í dag. Á myndinni eru þau ásamt Vigdísi Finnbogadóttur verndara Krabbameinsfélagsins, en hún var kosin í ráðið fyrir aldarfjórðungi.