14.07 2011

Þriðja hlaupið af fimm til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Laugardaginn, 16. júlí mun Gunnar Ármannsson hlaupa þriðja hlaupið af fimm til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Markmið Gunnars er að safna 1.000.000 króna til styrktar félaginu með því að hlaupa fimm áheitahlaup í sumar en þriðja hlaupið er Laugavegshlaupið.

Núþegar hafa margir lagt málefninu lið ogstyrkt átakið með því að leggja inná söfnunarreikning félagsins 0301-26-102005,kt. 700169-2789.

Fylgjast má með blogginu hans Gunnars  hér http://garmur.blog.is/blog/garmur/ en hann greindist sjálfur með hvítblæði á Þorláksmessu árið 2005 og fagnar því nú að það eru 5 ár liðin frá því hann lauk lyfjameðferð sinni og að því tilefni ákvað hann að hlaupa fimm hlaup til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.

Sjá frekar um verkefni hans Gunnars hér. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit