Það gustaði um glaðar konur og það braut í báru undan straumi, dagana 24.-25. maí. Þegar 14 konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini tóku þátt í ævintýrinu á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila, þær nutu þess að vaða Sogið í Grímsnesinu, vatnsmestu lindá landsins, kasta línu undir frábærri leiðsögn hæfra leiðsögumanna og veita tilhugalífi svananna athygli, sjá selinn sem var á undan okkur og finna fyrir vináttu, gleði og slökun.
Kastað til bata tókst frábærlega, öðlingskonur sem nutu samvista hver við aðra og náttúruna. ,,Þetta var yndislegt og frábært í alla staði ég á eftir að muna þessa ferð alltaf með gleði í hjarta og hlakka mikið til framhaldsins‘‘, sagði ein konan eftir ferðina.
Heildarumfjöllun um ferðina má sjá
hér.