18.07 2011

Hljóp Laugaveginn til styrktar Krabbameinsfélaginu

Gunnar Ármannsson hljóp Laugavegshlaupið síðastliðinn laugardag, 16. júlí, til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands en það var þriðja hlaupið af fimm sem hann hleypur til styrktar félaginu núna í sumar. 
Laugavegshlaupið er 55 km utanvegar hlaup og endaði Gunnar í 27. sæti sem er alveg hreint frábær árangur. Hann hefur núþegar safnað tæplega 500.000 krónum en markmið hans er að safna einni milljón króna þegar hann hefur lokið öllum fimm hlaupunum. En næsta hlaupið hans er Jökulsárhlaupið sem fram fer 6. ágúst nk. 

Sá frekari umfjöllun um hlaupaátak Gunnars hér og viðtal við Gunnar við Pressuna eftir hlaupið hér. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit