
Gunnar Ármannsson mun hlaupa fjórða hlaupið af fimm til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands næstkomandi laugardag en þá tekur hann þátt í Jökulsárhlaupinu sem er 32,7 kílómetra utanvegahlaup.
Erla Hlynsdóttir hjá Vísi tók viðtal við Gunnar um reynslu hans en hann greindist með hvítblæði á Þorláksmessu 2005 og fagnar því nú að fimm ár eru liðin síðan hann lauk lyfjameðferð.