09.08 2011

Alma Anna Þórarinsson, brautryðjandi í krabbameinsleit hér á landi er látin.

Alma Anna Þórarinsson Krabbameinsfélag ÍslandsAlma Anna Þórarinsson, f. Thorarensen, brautryðjandi í krabbameinsleit hér á landi er látin. 
Alma Anna Þórarinsson, f. Thorarensen, fæddist á Akureyri 12. ágúst 1922. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 9. júlí 2011. Alma var jarðsungin frá Langholtskirkju 19. júlí 2011.
Alma Þórarinsson var fyrsti yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og skipulagði leit að krabbameini í leghálsi, leit sem síðan hefur hlotið viðurkenningu sem ein sú besta í heiminum.
Þegar Alma var ráðin til að undirbúa leitarstarfið, sem hófst í júnímánuði 1964, var hún rúmlega fertug og hafði starfað m.a. sem sérfræðingur í svæfingarlækningum á sjúkrahúsum í Reykjavík. Hún kynnti sér krabbameinsleit af miklu kappi, m.a. með námsdvöl erlendis, og lagði af mörkum ómælda vinnu til að tryggja að vel til tækist. Það þótti tíðindum sæta þá að kona væri ráðin til að veita leitarstarfinu forstöðu, kynna það og skipuleggja. Alma stóð fyllilega undir þeim væntingum sem til hennar voru gerðar. Hún var hugrökk, greind og dugleg og hikaði ekki við að takast á við ný verkefni og fara ótroðnar slóðir.
Leitarstarfið náði í upphafi til 25-59 ára kvenna í Reykjavík. Til að vekja athygli á gildi leitarinnar var efnt til sýningar á fræðslukvikmynd í Gamla bíói þar sem Alma flutti erindi. Þurfti að endurtaka sýningarnar tvisvar og sagði Alma í blaðaviðtali að áhuginn sýndi skilning og þroska íslenskra kvenna.
Á aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands 1989 var þess minnst að aldarfjórðungur var liðinn frá upphafi leitarinnar. Þar flutti Alma fróðlegt erindi um starf sitt, en hún var yfirlæknir í átta ár og var sæmd gullmerki Krabbameinsfélagsins.
Fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands vil ég þakka Ölmu Þórarinsson fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins og íslenskra kvenna. Börnum hennar, fjölskyldum þeirra og aðstandendum votta ég samúð.

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit