10.06 2011

Mottumars á búningum knattspyrnudeildar Víðis.

Landsbankinn og knattspyrnufélagið Víðir styrkja Krabbameinsfélag ÍslandsLandsbankinn og knattspyrnudeild Víðis styrkja Krabbameinsfélag Íslands. 

Landsbankinn hefur afsalað sér auglýsingum á búningum hjá meistaraflokkum Víðis í knattspyrnu og boðið félaginu að velja sér gott málefni á búningana í staðinn. Víðir valdi Mottumars, árvekniátak Krabbameinsfélagsins um karla og krabbamein, og mun merki þess prýða búninga Víðis í sumar. 

Þetta er gert í takt við nýja stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög undir yfirskriftinni Samfélag í nýjan búning. Markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál.

Í tenglsum við þetta verkefni hefur verið stofnaður áheitasjóður fyrir Mottumars og greiðir bankinn tiltekna upphæð fyrir hvern sigur Víðis í sumar. Öðrum fyrirtækjum og einstaklingum er frjálst að heita á liðið sitt og leggja þannig góðu málefni lið.

Landsbankinn færði að tilefninu Krabbameinsfélaginu 500.000 kr. styrk vegna árvekniátaksins. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit