Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur boðið þeim Kastað til bata konum sem nýverið fóru í veiði í Elliðaánum fría inngöngu í félagið og frí félagsgjöld út árið.
Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veðiferð. Kastað til bata hefur tvisvar verið sett á laggirnar við glæsilegar undirtektir, í ár var farið í Sogið en í Laxárdal í fyrra.
Reykjavíkurborg bauð Kastað til bata konunum í Elliðaárnar í júlí þar sem margar þeirra fengu maríulaxinn sinn og meðal annars Gunnur Inga Einarsdóttir sem sést í meðfylgjandi umfjöllun fá Maríulaxinn og bíta í uggann á honum. Sjá
http://inntv.is/Horfa_á_þætti/Veiðisumarið$1311724860