18.08 2011

Krabbameinssjúklingar gætu þurft að bera aukinn kostnað.

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags ÍslandsKrabbameinsfélag Íslands hefur sent heilbrigðisnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar að því er varðar hlutdeild sjúklinga í kostnaði við lyf. Félagið fagnar ýmsum ákvæðum í frumvarpinu en leggst gegn því að krabbameinssjúklingar þurfi að greiða fyrir lyf sem þeir hafa hingað til fengið ókeypis.

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, var í viðtali í fréttum Stöðvar 2 þar sem hún gagnrýndi frumvarpið fyrir að vera ekki nægilega skýrt um að alvarlega veikir sjúklingar njóti áfram fullrar greiðsluþátttöku ríkisins á lyfjakostnaði. Sjá fréttina hér. 

En hér ber að líta umsögn Krabbameinsfélagsins um frumvarpið. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit