01.09 2011

Fjáröflun aðildarfélaga stendur yfir

Dagana 1.-8. september verður seldur ýmis smávarningur til styrktar starfi aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands, svo sem pennar, lyklakippur, tölvuklútar og styttur. Selt verður við verslanir og gengið í hús þar sem því verður við komið. 

Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands en það eru svæðisbundin krabbameinsfélög og stuðningshópar sem stofnaðir hafa verið til að sinna fræðslu og þjónustu við þá sem hafa fengið krabbamein. 

Svæðisbundnu félögin takast á við veigamikil verkefni í heimabyggð sinni, einkum á sviði fræðslu og stuðnings við sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Stuðningshóparnir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra og hefur það haft ómetanlega þýðingu. Sölunni er ætlað að styðja við þessa starfsþætti. Krabbameinsfélagið væntir þess að landsmenn taki sölufólki vel.





Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit