Krabbameinsfélag Íslands fékk nýverið 326.725 króna styrk frá Friendtex sem er stærsta heimasölufyrirtæki sem selur tískufatnað á Norðurlöndum. Friendtex hefur stutt Krabbameinsfélagið í um 9 ár með sölu á böngsum. Nú hafa þær einnig hafið sölu á bolum og leðurarmböndum sem hafa verið sérlega vinsæl.
Í vörulista fyrirtækisins segir að auk þess að gefa fólki kost á því að kaupa góðan fatnað á hagstæðu verði vilji fyrirtækið einnig styðja gott málefni sem snertir alla, baráttuna gegn krabbameini. Nánari upplýsingar um Friendtex má finna á vefsíðuni friendtex.is
Krabbameinsfélagið vill þakka Friendtex og sölufulltrúum þess sérlega vel fyrir stuðninginn.
F.v. söluhæstu sölukonur Friendtex í vörum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands Sigurbjörg Stefánsdóttir og Ragnheiður Helga Bæringsdóttir, Laila Sæunn Pétursdóttir markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands og Ása Björk Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Friendtex á Íslandi.