20.09 2011

Styrkir til rannsókna á krabbameinum hjá körlum

MottumarsKrabbameinsfélag Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til vísindarannsókna á krabbameinum hjá körlum. Styrkir þessir tengjast átaki félagsins er snýr að baráttunni gegn krabbameinum hjá karlmönnum.

Veittir verða fimm styrkir, samtals að upphæð 2,5 milljónir króna, sem skiptast þannig að einn styrkur er ein milljón króna, tveir styrkir eru 500.000 krónur og tveir styrkir 250.000 krónur. 

Umsóknir skal senda til Vísindaráðs Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 105, Reykjavík eða á netfangið throstur@krabb.is. Umsóknarfrestur er til 10. október nk. en styrkirnir verða veittir í desember .

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands í síma 540 1900.

Krabbameinsfélag Íslands.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit