22.09 2011

Gott fyrir gott

Bleikt slaufunammi til styrktar Krabbameinsfélagi ÍslandsStúlkurnar í hönnunarfyrirtækinu Fær-ID eru aftur komnar af stað með átaksverkefnið sitt Gott fyrir gott, bleiku slaufuna í formi nammihlaups. Hlaupið er framleitt af Nóa-Siríus fyrir FærID og rennur allur ágóði af sölu vörunnar til Krabbameinsfélags Íslands. 

Bleika slaufan hefur verið þekkt hingað til sem skart til styrktar baráttunni gegn krabbameinum hjá konum og verður hún aftur í ár en salan á henni hefst 1. október og mun standa yfir í 14 daga. En í hugmynd FærID, sem unnin var af Herborgu Hörpu Ingvarsdóttur og Þórunni Hannesdóttur, var markmiðið að víkka markhópinn og vinna hugmynd þar sem bleika slaufan væri fyrir alla. Niðurstaðan varð bleik nammislaufa sem verður til sölu í september og október.  

Varan kallast Gott fyrir gott - það eru fáir á móti því að fá sér (nammi)gott fyrir gott (málefni). 

Gottið er með ávaxtabragði og er án litarefna. Litnum á hlaupinu er náð fram með lit frá náttúrunnar hendi úr grænmetissafa, t.d. úr rauðrófum. 100 gramma poki er á 500 krónur og eru sölustaðir um allt land. Sölustaðir eru: N1, Iða, Mál og menning, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams, Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin. 

Fyrirtækjum gefst einnig kostur á að kaupa 15 gramma poka fyrir viðskiptavini sína og starfsfólk. Litlu pokarnir koma í kössum sem eru eitt kílógramm að þyngd(u.þ.b. 66 einingar) og er verðið á þeim 5.000 krónur. 

Pantanir eru  hjá Fær-ID orders@faerid.com eða í síma 865 8141. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit