06.10 2011

Alcoa starfsmenn hlaupa til góðs og lýsa upp hús

Bleikir Sómastaðir í tilefni Bleiku slaufunnar 2011Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði tekur mikinn þátt í Bleika slaufu átaki Krabbameinsfélagsins. Þau hafa nú lýst upp Sómastaði, súrálsfæribandið og tvö mastur í rafveitu, austan við verksmiðjuna. Laugardaginn 8. október ætla starfsmenn Fjarðaáls að fara í bleikt boðhlaup. 

Starfsmenn Fjarðaáls fara í bleikt boðhlaup 8. október

- til styrktar krabbameinsfélögum á Austurlandi

Bleiki mánuðurinn verður settur með trukki hjá Fjarðaáli þann 8. október því þá ætlar starfsfólk hjá álverinu á Reyðarfirði að hlaupa boðhlaup til styrktar krabbameinsfélögum á Austurlandi. Með því að taka þátt safna starfsmenn álversins framlögum frá Samfélagssjóði Alcoa, sem rennur svo óskipt til krabbameinsfélaganna. 

Ræst verður frá tveimur stöðum í einu kl. 10 á laugardagsmorgninum og hlaupið til Reyðarfjarðar. Anna Björk Hjaltadóttir, starfsmaður álversins, hefur veg og vanda að skipulagningu hlaupsins og segir hún að annars vegar verði ræst frá Vattarnesi sunnan mynnis Reyðarfjarðar og hins vegar frá Litlu-Breiðuvík sem er norðan mynnis. 

„Þetta eru um 65 km í heild og auðvitað vonum við að sem flestir sjái sér fært að hlaupa með okkur. Ég vinn að minnsta kosti hörðum höndum að því að safna liði á vinnustaðnum. Þátttakendur fá að sjálfsögðu bleikan bol til að hlaupa í og svo ætlum við að halda upp á þetta að hlaupi loknu með pizzuveislu í Sómasetrinu,“ segir Anna Björk. Fyrirkomulag hlaupsins verður með þeim hætti að þátttakendur geta ákveðið hversu langt þeir vilja fara og hvort þeir vilja hlaupa eða ganga. 

Samfélagssjóður Alcoa hefur undanfarin ár veitt um þremur milljónum króna á ári til þess að styðja við svokölluð „ACTION“ verkefni á Austurlandi. Þau felast í því að starfsmaður Fjarðaáls fær hugmynd að sjálfboðaverkefni í þágu félagasamtaka eða stofnunar, og mætir þá hópur starfsmanna á ákveðnum degi og vinnur í a.m.k. 4 tíma fyrir samtökin. Upphæðin sem rennur til samtakanna veltur á því hversu margir starfsmenn taka þátt, en yfirleitt mæta einnig fjölskyldur þeirra og aðrir áhugasamir um verkefnin hverju sinni.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit