06.10 2011

Bleikar rósir

Bleikar rósir til styrktar Krabbameinsfélagi ÍslandsBlómabúðin Burkni í Hafnarfirði ætlar að leggja Bleiku slaufu átaki Krabbameinsfélags Íslands lið með því að allur ágóð af sölu bleikra rósa í október rennur til félagsins.

„Við þekkjum flest einhvern sem greinst hefur með krabbamein og fannst okkur því tilvalið að taka þátt í baráttunni með því að selja það sem er sérgrein okkar, blóm, til styrktar Krabbameinsfélaginu“, sagði Brynhildur verslunarstjóri Burkna.

„Blómabúðin verður einnig lýst upp með bleikum ljósum í október og mun því ilmurinn og ljósin fá viðskiptavini til að svífa um á bleiku skýi,“ bætir hún við brosandi.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit