06.10 2011

Yfirlýsing um stuðning við gott málefni

Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags ÍslandsÍ Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélags Íslands sem fylgdi Fréttablaðinu þann 6. október var rætt við Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands.

Ragnheiður, getur þú sagt okkur hvað bleika slaufan er í þínum huga?

  • Hún er tákn um baráttu og samstöðu, um að við viljum leggjast á eitt til að ná framförum og árangri varðandi málefni sem snertir okkur öll. Í útliti má segja að hún sé tákn hins kvenlega en hún er þó skartgripur sem fjölmargir karlmenn bera með miklu stolti. Það að bera slaufuna er í raun óorðuð yfirlýsing um að við viljum leggja eitthvað af mörkum - gera gagn.

Hvers vegna er slaufan búin til í Suður-Afríku?

  • Hugmyndina fengum við frá norska krabbameinsfélaginu en það lét perla 10.000 svona slaufur í fyrra. Við hjá Krabbameinsfélagi Íslands erum þó öllu stórtækari og bjartsýn á örlæti landans og létum perla 50.000 slaufur. Okkur finnst slaufan bæði mjög falleg og vel gerð og svo er auðvitað ánægjulegt að geta haft góð áhrif á líf fjölda barna og kvenna í neyð.

En getið þið verið viss um að konurnar njóti góðs af vinnu sinni?

  • Sannast sagna höfðum við af þessu töluverðar áhyggjur þegar leið á vorið, því að við höfum öll heyrt miður falleg dæmi af barnaþrælkun, spillingu og þess háttar. Við vorum því mjög þakklát þegar tveir sjálfboðaliðar tóku þá ákvörðun að fara til að kanna málið af eigin raun. Í stuttu máli var niðurstaða þeirra sú að það væri geysilega vel að verki staðið og umbunin kæmist beint til kvennanna. Við öndum sannarlega léttar!

Allt þetta bleika! Til hvers eiginlega?

  • Bleiki mánuðurinn, október, er áberandi um allan heim. Við erum annars vegar að safna fyrir starfsemi Krabbameinsfélagsins og hins vegar erum við að vekja athygli á og minna á krabbamein hjá konum, því í mörgum tilvikum getur árvekni skipt miklu máli. Bleika slaufan er aðeins einn liður í þessu en bæði einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir styðja við bakið á okkur með margvíslegum hætti þennan mánuð.

Hvernig nýtið þið síðan það fjármagn sem safnast?

  • Með svipuðum hætti og undanfarin ár: Við styrkjum þá starfsemi sem er á okkar vegum, svo sem krabbameinsleit, skráningu meina, forvarnir, ráðgjöf og þjónustuskrifstofur og byggjum hana upp þannig að við náum árangri. Að auki erum við staðráðin í að setja hluta af söfnunarfénu í sjóð til að kaupa tæki til að greina HPV-smit hjá konum. Ef við hefðum yfir slíku tæki að ráða gætum við ákvarðað betur en nú hvort frumubreytingar eru alvarlegar eða ekki, fækkað komum kvenna í eftirlitsskoðanir, fækkað leghálsspeglunum og jafnvel keiluskurðum. Það er tvímælalaust framtíðin.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit