Í dag, 10. október 2011, birtist frétt í Fréttablaðinu um ráðstöfun fjár sem safnaðist í árveknis- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins, Mottumars. Mikilvægt er að skýra tvö atriði í fréttinni.
Sagt er að fimm milljónir króna af áheitum hafi ekki skilað sér. Nú eru ekki nema tvær milljónir króna útistandandi og enn er verið að skila inn áheitum. Þá kemur fram í fréttinni að um ,,sex milljónum króna hafi verið ráðstafað í rannsóknastarf, þar með talið í auglýsingaherferð tengda könnun á karlmönnum og krabbameini.“ Engin slík auglýsingaherferð hefur átt sér stað, en við höfum hins vegar auglýst í tveimur dagblöðum og boðið fram fimm rannsóknastyrki samtals að upphæð tvær og hálf milljón króna. Styrkjunum er ætlað að hvetja íslenska rannsakendur til að leggja stund á rannsóknir á krabbameinum karla. Umsóknarfrestur rennur út í dag.