
Í tilefni af Bleika deginum þann 7. október sl. gaf starfsmannafélag Arion banka 500 krónur fyrir hverja konu sem er í félaginu til Krabbameinsfélagsins, alls 321.000 krónur. Bleiki dagurinn var haldinn með skemmtilegu móti í bankanum og blésu þau til vöffluveislu með bleikum rjóma og hvöttu alla til að mæta í einhverju bleiku.
Bjarki Hvannberg tók svo sannarlega bleika daginn með stæl og klæddist bleikri skyrtu
við bleik jakkaföt en hann var manaður upp í það af öðrum starfsfélögum.

Hétu þeir á hann 41.000 krónur fyrir að vera í fötunum allan daginn og kvöldið líka.
Hann gaf Krabbameinsfélagi Íslands þá upphæð.
„Það var sérstaklega gaman að heimsækja höfuðstöðvar Arion banka á bleika deginum og finna áhugann og stemmninguna. Gott og gagnlegt framtak hjá þeim“, sagði Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands eftir heimsóknina.
Sjá viðtal við starfsmenn Arion banka sem mbl sjónvarpið tók
hér.