Grein eftir Jakob Jóhannsson um kostnað krabbameina. Greinin birtist í
Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélags Íslands sem kom með Fréttablaðinu þann 6. október.
Jakob Jóhannsson læknir segir að kostnaðurinn sé minni hér á landi en í hinum norrænu löndunum.
Síðastliðið vor kom út skýrsla á vegum Norræna krabbameinssambandsins (Nordic Cancer Union, NCU) þar sem gerð er tilraun til að bera saman kostnað norrænu þjóðanna af krabbameinum. Skýrslan er lýsandi, bæði hvað varðar kostnað af krabbameinum og um mismunandi skipulag þjóðanna.
Kostnaður á hvern þjóðfélagsþegn er gefinn upp í evrum. Meðferð við krabbameinum er dýrust í Noregi, 133 evrur, en hér á landi er hún næstódýrust eða 110 evrur. Það má því segja að Íslendingar hafi upp á töluvert að hlaupa hvað varðar að auka kostnað við meðferð krabbameina miðað við hin norrænu löndin, sérstaklega með tilliti til nýrra lyfja og nýrra tækja við geislameðferð. Þetta eru mikilvægar upplýsingar þar sem við berum okkur saman við þessi lönd þegar um meðferð sjúkdóma er að ræða.
Kostnaður af leit að brjóstakrabbameini er hæstur í Svíþjóð en næsthæstur hér á landi. Kostnaður vegna leitar að leghálskrabbameini er hæstur hér á landi. Samkvæmt skýrslunni standa Svíar og Íslendingar sig best í leitarstarfinu.
Opinber kostnaður af tekjumissi og örorku vegna krabbameina er minnstur á Íslandi eða 10 evrur. Hann er hæstur í Noregi eða 45 evrur. Hluti af skýringunni getur verið sá að
vinnuveitendur
hér á landi taki meiri þátt í þessum kostnaði en gert er í hinum löndunum.
Niðurstaðan er því sú að við stöndum okkur ágætlega hvað varðar þann kostnað sem þjóðfélagið hefur af
krabbameinum
. Einnig kemur berlega í ljós að mestur kostnaður af völdum krabbameina er vegna meðferðar en þar er kostnaðurinn samt næstlægstur hér á landi. Hins vegar er bent á það í skýrslunni að búast megi við því að kostnaður Norðurlandaþjóðanna vegna krabbameina eigi eftir að aukast á næstu árum og áratugum, meðal annars vegna vaxandi tíðni sjúkdómsins.