07.10 2011

Bleika konukvöldið verður í Hörpu og Hofi

Bleika kvennakvöldiðBleika konukvöldið verður haldið á tveimur stöðum í ár. Miðvikudagskvöldið 26. október 2011 verður Bleikt konukvöld haldið í Hofi á Akureyri.

Miðvikudagskvöldið 26. október 2011 verður Bleikt konukvöld haldið í Hofi á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem Bleika konukvöldið verður sett líka af stað á Akureyri og er það fyrir tilstuðlan verkefnastjóra Hofsins, Láru Sóleyjar.

Fimmtudagskvöldið 27. október 2011 mun um eitt þúsund konum gefast kostur á að koma á konukvöld í Hörpunni. Ýmiss konar skemmtun verður í boði en unnið er hörðum höndum að því að útbúa fjölbreytta dagskrá. Þetta er þriðja árið í röð sem konukvöldið er haldið til að ljúka árveknis- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni. Tilgangurinn með Bleika konukvöldinu er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund en ekki síst að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum.

Það eru þau Valur, Katrín og Kristín hjá fyrirtækinu Íslandsmót sem sjá um viðburðastjórnunina. „Við höfum fylgst með átaki Krabbameinsfélagsins í gegnum árin og okkur finnst mikill heiður að því að annast Bleika konukvöldið í ár. Það verður einstaklega gaman að setja upp viðburðinn í Hörpu,“ segja skipuleggjendurnir. 

„Fjölbreytt dagskrá með fjölda landsfrægra listamanna svo sem tónlistarfólki og dönsurum verður í boði en við viljum ekki ekki kynna dagskrána strax en hún verður auglýst sérstaklega þegar nær dregur."

Boðið verður sérstaklega auglýst á vefsíðunum www.krabb.is og www.facebook.com/bleikaslaufan en í fyrra komust færri að en vildu.

Viðtal og grein um Bleika kvennakvöldið var í Bleika slaufu blaðinu sem fylgdi Fréttablaðinu þann 6. október. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit