17.10 2011

Baráttudagur gegn brjóstakrabbameini

Baráttudagur gegn brjóstakrabbameini var haldinn í 46 löndum þann 15. október 2011, undir merkjum Europa Donna, evrópusamtaka gegn brjóstakrabbameini. Samhjálp kvenna er aðili að samtökunum. 
Markmiðið með þessum degi er að auka þekkingu og árvekni kvenna á öllum aldri gagnvart brjóstakrabbameini og leiðum til forvarna, m.a. með lífsháttum sem gætu stuðlað að því að draga úr hættu á að fá sjúkdóminn. Europa Donna byggir þekkingu sína á rannsóknum Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunarinnar (IARC).


Veldu hollari kostinn

Slagorð átaksins í ár er „Veldu hollari kostinn“ og vísar til mikilvægis reglulegrar hreyfingar, holls matarræðis, að hafa stjórn á líkamsþyngd, takmarka áfengisneyslu og að forðast reykingar.

Lykilatriði í áherslum Europa Donna, auk forvarna, eru að allar konur á aldrinum 50-70 ára fái boð um leit að brjóstakrabbameini, greiningu og meðferð sem byggð er á gagnreyndum og viðurkenndum starfsháttum.
Samhjálparkonur leggja áherslu á að allar konur sem verða varar við einhverjar breytingar í brjóstum sínum leiti strax til læknis eða Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og einnig að konur mæti þegar þær fá boð um brjóstamyndatöku.

Rannsóknir sýna að árangur í baráttunni gegn brjóstakrabbameini á Íslandi er með þeim besta í heiminum í dag. Í tilefni af deginum voru sjálfboðaliðar frá Samhjálp kvenna á 2. hæð í Kringlunni að spjalla við konur og veita upplýsingar.

[tekið úr grein Morgunblaðsins þann 15. október 2011]


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit