Styrktartónleikar á Obbladí Frakkastíg 8 verða föstudagskvöldið 21. október klukkan 21.
Fram koma Andrea Gylfadóttir ásamt Eðvarði Lárussyni gítarleikara, Helga Völundardóttir ásamt Magnúsi R. Einarssyni gítarleikara og Lísa Pálsdóttir ásamt Björgúlfi Egilssyni.
Listamennirnir og Obbladí hafa ákveðið að gefa allan ágóða af tónleikunum til styrktar átaki Krabbameinsfélagsins Bleiku slaufunni.