
Krabbameinsfélag Ísland heldur Bleika kvennakvöldið í Hörpu fimmtudaginn, 27. október. Þar mæta 1000 konur í fjölbreytta skemmtun – en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar legja sitt af mörkum til að gleðja gesti. Miðasala fer fram á vefnum
bleikabodid.is og er verði haldið í lágmarki – einungis 1.200 krónur fyrir eina vinsælustu skemmtun ársins! Aðgöngumiða fylgir einnig happdrættismiði, en happdrættið er til styrktar Bleiku slaufunni og eru veglegir vinningar í boði!
Það er ráðstefnu- og viðburðafyrirtækið Íslandsmót sem sér um skipulagningu boðsins í Hörpu: „Við höfum fylgst með Bleiku slaufunni í gegnum árin og finnst mikill heiður að því að annast Bleika boðið í ár. Það hefur verið einstaklega gaman að setja upp þennan glæsilega viðburð, með fjölbreyttri dagskrá landsfrægra listamanna,i og teljum við víst að allar konur geti fundið eitthvað við sitt hæfi og lofað gleðiinni að taka völdin ásamt því að styrkja þetta göfuga verkefni,,“ segir Valur Blomsterberg, markaðsstjóri Íslandsmóts.
Bleika kvennakvöld í fyrsta sinn á Akureyri!
Norðlenskar konur þurfa ekki að örvænta því að miðvikudagskvöldið 26. október verður Bleika boðið haldið í Hofi á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið verður haldið á Akureyri og er það fyrir tilstuðlan verkefnastjóra Hofsins, Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur. Boðið verður upp á stórkostlegt listafólk, hönnun og tísku í glæsileg dagskrá! Miðar á Bleika konukvöldið á Akureyri fást í Hofi og á vefnum menningarhus.is.
„Konur hafa sýnt ótrúlegan samtakamátt í baráttunni gegn krabbameinum og viljum við þakka þeim stuðninginn með því að skemmta okkur vel saman. Bleika boðið er orðið að árvissum viðburði og er það einstök ánægja að geta boðið norðlenskum konum með í fjörið í ár. Ég hvet konur að kaupa sér miða sem allra fyrst, en reynslan kennir okkur að færri komast að en vilja,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og þakkar kærlega þeim fjölmörgu aðilum sem komið hafa að skipulagningu Bleiku konukvöldanna og stutt við þau með ýmsum hætti.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Haraldsdóttir • forstjóri Krabbameinsfélags Íslands • sími 540-1900 • 895 0218
Laila Sæunn Pétusdóttir • markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands • sími 540-1926 • 693-0175
Dagskrá í Hörpu, fimmtudaginn 27. október
Húsið opnar kl. 20.00 • Léttar veitingar frá Hörpudiski
Friðrik Ómar og Jógvan • Dikta • Andrea Gylfa og Marel-bluesbandið • Lögreglukórinn • Duo De Mano • Fimleikafélagið Gerpla • Flensborgarkórinn • Happdrætti • Alvöru menn •
Dans-tískusýning í boði Fatahönnunarfélags Íslands og Sigrúnar Birnu Blomsterberg, danshöfundar • Töframenn (Daníel og Einar) • og margt fleira!
Fjöldi kynningar- og sölubása frá íslenskum hönnuðum!
Veislustjórar eru Brynja Valdís og Bryndís Ásmunds • miðasala á
bleikabodid.is
Dagskrá í Hofi, miðvikudaginn 26. október
Húsið opnar kl. 19.30 • Léttar veitingar frá 1862 Nordic Bistro og fordrykkur í boði Vífilfells
Lay Low • Hvanndalsbræður • Dóróthea Jónsdóttir • Hundur í óskilum • Kristjana Arngrímsdóttir • Alt saman• Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands • Eyþór Ingi Jónsson •
Kammerkórinn • Ísold • Ívar Helgason • Eyrún Unnarsdóttir • Lára Sóley Jóhannsdóttir
Óskar Pétursson • Dansatriði frá Point Dance Stúdíó • Happdrætti • Íslensk hönnun
Uppboð á hönnunarvörum • og margt fleira!
Veislustjórar eru Þórhildur Ólafsdóttir og Sveinn Halldór Guðmarsson • miðasala á
menningarhus.is