31.10 2011

Bleikt kvennakvöld í Hörpunni

Bleika kvennakvöldið 2011Bleika kvennakvöldið var haldið í Hörpu, Reykjavík, þann 27. október 2011. Yfir 1000 konur komu þar saman og skemmtu sér vel. Hér má sjá myndir frá kvöldinu en einnig var sett saman myndband sem má sjá hér. 

Dagskráin var þétt og var tekið á móti konunum af Ísdrottningum fyrir framan Klakastyttu og söng Lögreglukórinn fyrir þær. Rauður dregill leiddi þær að sölu- og kynningarbásum frá ýmsum fyrirtækjum og hönnuðum og þar tók Duo de Mano einnig á móti þeim með ljúfa tóna sem og fordrykkur frá Ölgerðinni. Á básunum var ýmis varningur og rann a.m.k. 20% af ágóða sölunnar til Krabbameinsfélagsins. Fyrirtækin sem voru með sölu- og kynningarbása voru: Krabbameinsfélag Íslands, LukeArt & design, Nostrum, SunBird, Forlagið, Sóley Organics, Bláa Lónið, Gyðja, Þóra Björk Schram, Yggdrasill, Guðrún Þórisdóttir, Frigg-Mjöll, Forval, Forever Living, Sportís, Besta Skinn/Fjóla, FærID, Salkaforlag og Orkan. Að auki var Krabbameinsfélagið með bás og gat fólk skráð sig sem Velunnari eða Félagsmaður Krabbameinsfélagins og Fagráð hjúkrunarfræðinga var með fræðslubás þar sem konur svöruðu ýmsum spurningum og sett var upp fræðsluhappdrætti þar sem í vinning var Canon myndavél frá Nýherja og mánaðarkort í líkamsrækt og Spa hjá Nordica Spa

Léttar veitingar frá Hörpudiski voru í boði og konur gátu keypt sér drykki á bar þeirra. . Svo byrjaði dagskráin með látum þegar Bryndís Ásmunds og Brynja Valdís, kynnar kvöldsins, stigu á stokk og Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, þakkaði öllum fyrir komuna sem og öllum stuðningsaðilum. Andrea Gylfadóttir og Marelbandið tóku svo lagið og fimleikafélagið Gerplurnar sýndu listir sýnar. Flensborgarkórinn söng síðan fyrir viðstadda og Jógvan og Friðrik bræddu hjörtu viðstaddra. Loks var tísku- og danssýning undir stjórn Sigrúnar Birnu Blomsterberg. Það voru fyrirsætur frá Eskimo models og Elite models sem að sýndu fatnað frá ýmsum hönnuðum úr Fatahönnunarfélagi Íslands: Andersen & Lauth, Ásta Creative, Birna, Forynja, Hanna Felting, Lukaart & Design, Lykkjufall, María Lovísa, Nostrum, Rósa Design, Sonja Bent og Farmers Market. Síðan steig Dikta á svið og loks leikhópurinn Alvöru menn. Á milli atriða skemmtu töframennirnir Daníel og Einar viðstöddum og DJ Fox sá um tónlistina. 

Happdrættismiði fylgdi öllum aðgangsmiðum á boðið en einnig gafst viðstöddum tækifæri að kaupa miða á staðnum til að auka vinningslíkur sínar. Í vinning var:  Þrjú mánarðarkort í líkamsrækt og Spa hjá Nordica Spa, Forever Living dekurkarfa frá Jónu Björg og Lóu, Slá frá Ásta Clothes, tvær ferðir fyrir tvo með kynnisferðum, hátíðarkvöldverður fyrir tvo á Silfur, Gjafaaskja frá Bláa Lóninu, Farmers Market trefill og gjafakarfa frá Forval, Silfurhálsmen frá Leonard, sex mánaðarkort í heilsurækt og baðstofu World Class og gjafakarfa með snyrtivörum frá Forval. Einungis einn vinningur gekk ekki út um kvöldið en hann var á miða 1272 og getur eigandi þess miða komið í Skógarhlíð 8 og vitjað vinningsins en það er gisting fyrir tvo með morgunverð og fjögurra rétta kvöldverð á Hótel Rangá sem og dekurgjafabréf frá Óskaskrín

Nóg var sem sé um dýrðirnar í skemmtiatriðum kvöldsins og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. En Bleika kvennakvöldið hefði aldrei getað heppnast svona vel nema ef væri fyrir tilstillan frábærra stuðnings- og styrktaraðila, sem og viðburðastýrning frá Íslandsmót. En stuðnings- og styrktaraðilar eru hér í starfrófsröð. 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit